HAFIN er útleiga á Hummer-jeppum hér á landi. Það er Hummer-umboðið á Fosshálsi í Reykjavík sem leigir út bílana. Í frásögn á heimasíðu sinni segir að hér sé um löglegar gerðir bílsins að ræða, þ.e.a.s. án vélbyssuturns!
HAFIN er útleiga á Hummer-jeppum hér á landi. Það er Hummer-umboðið á Fosshálsi í Reykjavík sem leigir út bílana. Í frásögn á heimasíðu sinni segir að hér sé um löglegar gerðir bílsins að ræða, þ.e.a.s. án vélbyssuturns! Þarna er vísað í það að Hummer hefur verið notaður af bandaríska hernum í hernaði víða um heim en Hummer er einnig framleiddur í borgaralegri útgáfu. Þeir sem ætla að leigja Hummer þurfa að vera orðnir 27 ára gamlir. Áður en útleigan hefst er viðskiptavinum gefnar leiðbeiningar um akstur á bílnum. Verðið er 379 dollarar á dag, rúmar 27 þúsund krónur. Innifalið er 100 km akstur en fyrir ótakmarkaðan akstur kostar dagurinn um 40 þúsund krónur. Einnig er hægt að leigja Hummer í eina viku eða lengur og með eða án ökumanns.