TÓNLISTARHÁTÍÐIN í San Remo á Ítalíu stendur sem hæst um þessar mundir og var tenórinn vinsæli Luciano Pavarotti meðal þeirra sem komu fram á hátíðinni í vikunni.
TÓNLISTARHÁTÍÐIN í San Remo á Ítalíu stendur sem hæst um þessar mundir og var tenórinn vinsæli Luciano Pavarotti meðal þeirra sem komu fram á hátíðinni í vikunni. Hann notaði tækifærið er hann steig af sviðinu og smellti kossi á hina fögru spænsku leikkonu Ines Sastre og virtist hún kunna því ágætlega.
Fjöldi annarra tónlistarmanna hefur látið ljós sitt skína á San Remo-hátíðinni sem fagnar í ár 50 ára afmæli. Robbie nokkur Williams steig einmitt á svið í vikunni og heillaði ítalskar ungmeyjar.