Bresk blöð halda því fram að hjónakornin Kate Winslet og Jim Threapleton eigi von á sínu fyrsta barni.
Bresk blöð halda því fram að hjónakornin Kate Winslet og Jim Threapleton eigi von á sínu fyrsta barni.
KATE Winslet, sem kunnust er fyrir samleik sinn með Leonardo DiCaprio í Titanic, er barnshafandi. Það hafa talsmenn leikkonunnar bresku staðfest í kjölfar getgátna breskra fjölmiðlum.

KATE Winslet, sem kunnust er fyrir samleik sinn með Leonardo DiCaprio í Titanic, er barnshafandi. Það hafa talsmenn leikkonunnar bresku staðfest í kjölfar getgátna breskra fjölmiðlum. Winslet, sem er 24 ára, giftist leikstjóranum Jim Threapleton fyrir rúmu ári en leiðir þeirra lágu fyrst saman á tökustað árið 1997.

Þetta mun verða fyrsta barn þeirra hjóna og er væntanlegt í heiminn í september. Í nýlegu viðtali segist hún hafa mikið yndi af börnum og vilja sjálf eignast ein þrjú eða fjögur með eiginmanni sínum.

Leikkonan fagra hefur nýlokið við að leika í myndinni "Quills" sem fjallar um líf Marquis de Sade og fréttir herma að hún hafi samþykkt að leika í myndgerð skáldsögunnar "Enigma" eftir Robert Harris.