[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Leikurinn / The Match ½ Bráðskemmtileg og vel gerð fótboltamynd sem lýsir ástum og örlögum íbúa í skoskum smábæ.

Leikurinn / The Match ½

Bráðskemmtileg og vel gerð fótboltamynd sem lýsir ástum og örlögum íbúa í skoskum smábæ.

Ástkær / Beloved ½

Dálítið mistæk kvikmyndun á mögnuðu skáldverki Toni Morrison sem fjallar um þjáningar þrælahaldsins í Bandaríkjunum og eftirköst þess. Myndin gæti þó orðið þolinmóðum áhorfendum áhrifarík upplifun.

Svartur köttur, hvítur köttur / Crna macka, beli macor

Emir Kusturica gefur galsanum lausan tauminn í þessum tryllingslega og bráðfyndna farsa.

Októberhiminn / October Sky

Mannleg og hrífandi mynd sem lýsir vel draumum og þrám um að skipta máli, stíga skrefið fram á við og setja mark sitt á söguna. Rennur einkar ljúflega í gegn.

Aparéttarhöldin / Inherit the Wind ½

Framúrskarandi vandað réttardrama þar sem tveir af meisturum kvikmyndasögunnar, Jack Lemmon og George C. Scott, fara hreinlega á kostum í bitastæðum hlutverkum.

Prúðuleikarar úr geimnum / Muppets from Space ½

Hér mæta Prúðuleikararnir til leiks, ærslafullir og bráðfyndnir sem

endranær. Dálítið verið að Hollywood-væða gömlu góðu brúðurnar en á skemmtilegan hátt engu að síður.

Þjófar á nóttu / Thick as Thieves

Vönduð glæpasaga sett fram á ferskan og frumlegan máta. Með henni virðist áhugaverður leikstjóri, Scott Sanders, kominn fram á sjónarsviðið. Alec Baldwin nýtur sín vel sem og aðrir leikarar.

Notting Hill ½

Meðalgóð ástarsaga sem á sér stað í hinu heillandi Notting Hill-hverfi í Lundúnum. Myndin nýtur sín í einstökum kómískum atriðum fremur en heildarfrásögninni. Hugh Grant er sömuleiðis nokkuð hæpinn.

Tedrykkja með Mússólíní / Tea with Mussolini

Ítalski leikstjórinn Franco Zeffirelli hverfur aftur til æskuslóða sinna í þessari hálf-sjálfsævisögulegu kvikmynd. Hann nýtur liðsinnis frábærra leikkvenna og umgjörðin er einkar glæsileg.

Sjóræningjar Kísildals /Pirates Of Silicon Valley

Upphaf tölvurisanna Microsoft og Apple og valdabarátta þeirra Bill Gates og Steve Jobbs rakin á aðgengilegan og skrambi skemmtilegan máta. Noah Whyle er glerfínn sem Jobbs en Hall fer ekki eins vel með ríkasta mann í heimi.

Farðu / Go

Frískleg glæpablandin gamanmynd sem fer skemmtilega með hinn brotakennda frásagnarstíl sem Tarantino gerði frægan um árið. Frumleg og vel leikin ungdómsmynd.

Skrifstofurými / Office Space

Fersk og bráðfyndin gamanmynd um þrúgandi veruleika vinnunnar á tímum markaðshyggju og stórfyrirtækja. Fyrri helmingur myndarinnar tekur á þessu efni á snilldarlegan hátt en fer síðan út í aðra og ómerkilegri sálma.

Hlauptu Lóla, hlauptu / Lola Rennt

½

Kvikmyndin um hlaupagikkinn Lólu þykir bera með sér ferska strauma í þýska kvikmyndagerð en hún hefur notið vinsælda víða um lönd. Myndin er nýstárleg, hröð og kraftmikil en þar er blandað saman ólíkri tækni til að ná fram sterkri sjónrænni heild. Frumleg og vel heppnuð tilraun með möguleika myndmiðilsins.

Mookie ½

Létt og skemmtileg frönsk gamanmynd sem fjallar um trúboða og atvinnuboxara á flótta með talandi apa. Fótboltakappinn Eric Cantona er bráðskemmtilegur í hlutverki boxarans.

Framapot / Election

½

Það gerist alltof sjaldan að eins safaríkar myndir og þessi rekur á fjörurnar. Hárfínt og beitt handritið hittir beint í mark í meðferð leikara sem eru hver öðrum betri.

Hvunndagshetjan / The Jack Bull

Fullkomið dæmi um hinar vönduðu kapalsjónvarpsmyndir sem verið er að framleiða um þessar mundir vestan hafs. Vandaður vestri gerður af einvala liði. Konfektmoli fyrir vestraunnendur.

Óveður aldarinnar / The Storm of the Century

Enn ein Stephen King-sagan kvikmynduð og er þessi vel yfir meðallagi góð. Það virðist gefa góða raun að láta hann sjálfan skrifa handritið. Besta sjónvarpsmyndasyrpan sem gerð hefur verið eftir sögu Kings.

Mill on the Floss /Myllan við ána Floss

½

Emily Watson bregst ekki frekar enfyrri daginn í meðalgóðri útgáfu af bók George Eilot. Bernard Hill skín í hlutverki föðurins.

Gunshy / Byssuragur

½

Góður leikur, sérstaklega hjá Michael Wincott, og gott handrit halda þessari hefðbundu glæpaheimsmynd fyrir ofan meðallag.

Falcone / Falcone dómari

½

Góð mynd sem byggist á sannsögulegum atburðum um baráttu dómarans Falcone við hina gífurlega valdamiklu mafíu.

Hlauptu Lóla, hlauptu / Lola Rennt

½

Kvikmyndin um hlaupagikkinn Lólu þykir bera með sér ferska strauma í þýska kvikmyndagerð en hún hefur notið vinsælda víða um lönd. Myndin er nýstárleg, hröð og kraftmikil en þar er blandað saman ólíkri tækni til að ná fram sterkri sjónrænni heild. Frumleg og vel heppnuð tilraun með möguleika myndmiðilsins.

Jarðarför í Texas / A Texas Funeral

½ Vel skrifuð kvikmynd sem byggir smám saman upp frambærilegt fjölskyldudrama. Hverri persónu er gefið gott svigrúm og leikarar njóta sín vel í bitastæðum hlutverkum.

Limbó / Limbo

½

Þessi nýjasta mynd leikstjórans John Sayles er vel skrifuð og forvitnilega upp byggð. Hún bregður upp skarpri mynd af smábæjarlífi í Alaska og kafar síðan djúpt í tilfinningalíf nokkurra aðalpersóna. Óvenjuleg og töfrandi kvikmynd.

American Pie

Unglingamynd vel yfir meðallagi, fyndin og vel leikin. Tekur aðrar myndir um stráka með kynlíf á heilanum í nefið.

Heiða Jóhannsdóttir Ottó Geir Borg Skarphéðinn Guðmundsson