ÞAÐ fór vel um gesti í sem brugðu sér í heita pottinn í sundlauginni á Þelamörk í fyrrakvöld.
ÞAÐ fór vel um gesti í sem brugðu sér í heita pottinn í sundlauginni á Þelamörk í fyrrakvöld. Gríðarlegt fannfergi er norðanlands um þessar mundir og stöðugt hefur bæst við en eins og sjá má á myndinni hafa myndast heljarinnar göng að pottinum og eins konar hellir yfir honum. Starfsmenn sundlaugarinnar höfðu kveikt á kertum í pottinum svo gestirnir gætu séð handa sinna skil.