TVEIR menn veittust að pizzusendli í Álftamýri rétt fyrir klukkan tvö í fyrrinótt. Að sögn lögreglu stálu þeir af honum pizzu og um 1.000 krónum í peningum.

TVEIR menn veittust að pizzusendli í Álftamýri rétt fyrir klukkan tvö í fyrrinótt. Að sögn lögreglu stálu þeir af honum pizzu og um 1.000 krónum í peningum.

Pöntuð hafði verið pizza í hús í Álftamýri, en þegar sendillinn, sem er 19 ára gamall, bankaði upp á kannaðist enginn þar við að hafa pantað skyndibitann og sneri sendillinn því aftur út í bíl, en þá veittust mennirnir að honum. Hrifsuðu þeir af honum bökuna og heimtuðu peninga að auki. Sendillinn lét þá hafa pizzuna og um 1.000 krónur.

Að sögn lögreglu eru mennirnir ófundnir.