SÖNGDEILD Tónlistarskóla Eyjafjarðar efnir til tónleika í Kaupangskirkju í kvöld, sunnudaginn 5. mars kl. 20.30.

SÖNGDEILD Tónlistarskóla Eyjafjarðar efnir til tónleika í Kaupangskirkju í kvöld, sunnudaginn 5. mars kl. 20.30.

Þar koma fram söngnemarnir Auðrún Aðalsteinsdóttir, Erna Hrönn Olafsfóttir, Petra Björk Pálsdóttir og Sigríður Hulda Arnardóttir og flytja þær fjölbreytta efnisskrá, m.a. lög eftir Dowland, Bellman, Schubert og fleiri ásamt erlendum þjóðlögum. Meðleikari á gítar er Hannes Þ. Guðrúnarson, sem einnig leikur einleik á gítar.

Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.