TÓNLISTIN í Englum alheimsins er eftir Hilmar Örn Hilmarsson, utan að Sigur Rós á tvö lög undir lok myndarinnar.

TÓNLISTIN í Englum alheimsins er eftir Hilmar Örn Hilmarsson, utan að Sigur Rós á tvö lög undir lok myndarinnar. Hilmar er afkastamikill kvikmyndatónlistarsmiður og hefur meðal annars unnið til verðlauna fyrir tónlist sína; hreppti Felix-verðlaunin fyrir tónlistina í Börnum náttúrunnar.

Eftir rúma viku kemur úrval tónlistarinnar við myndina út á diski, fimmtán lög eftir Hilmar Örn og lögin tvö með Sigur Rós. Í tilefni af því leggja Hilmar Örn og hljómsveitin upp í stutta tónleikaferð, halda ferna tónleika. Fyrstu tónleikarnir verða á Sauðárkróki 8. mars næstkomandi, þá koma tónleikar 9. mars á Akureyri, 12. mars í Keflavík og loks verða tónleikar í Menntaskólanum við Sund 15. mars, sama dag og platan kemur út.

Tónlistin samin með aðalpersónuna í huga

Hilmar segist hafa verið búinn að finna nokkuð af hugmyndum áður en myndin var tekin, en hann hitti Friðrik Þór Friðriksson, leikstjóra myndarinnar, í Kaupmannahöfn og fékk hjá honum handritið nokkru áður en tökur hófust. "Ég samdi tónlistina með tilliti til aðalpersónunnar, reyndi að birta hugarheim hennar og upplifanir; einskonar sinfóníu í hausnum á persónunni. Hún dregur mið af þvi sem hefur áhrif á [aðalsöguhetjuna] Pál, þá tónlist sem hann er að hlusta á og líka hin sífellda umbreyting sem er í gangi þegar allt er að breytast í eitthvað allt annað."

Hilmar segir að eina sem hann hafi hræðst í handritinu var hversu myndin var hugsuð í ákveðnum tíma, en með því að Friðrik gerði myndina óháða ákveðnu tímaskeiði var það vandamál úr sögunni.

Hilmar segir að þar sem myndin hafi verið unnin á miklum hraða þurfti hann líka að vinna hratt og fékk í hendurnar allar tökur um leið og búið var að færa þær á band. "Ég fékk aðstöðu þar sem ég gat farið yfir tökurnar jafnóðum og unnið tónlistina í samræmi við það, fellt hana að útliti myndarinnar, áferðinni og leikstílnum. Þegar myndin var síðan klippt hafði ég stuttan tíma til að ljúka mínu verki og forvinnan kom þá að góðum notum og ekki síst einstök samvinna við Kjartan Kjartansson sem gerði þetta kleift.

Hilmar segir að tónlistin hafi eðlilega breyst allmikið frá því sem hann hugsaði sér í fyrstu og þá helst að hann tempraði hana mun meira en hann hafði hugsað sér í upphafi. "Þegar ég sá lokagerð myndarinnar fannst mér ég verða að gæta mín á því að segja ekki of mikið með tónlistinni; það eru svo gríðarlega sterkar tilfinningar í gangi í myndinni að það var ekki á bætandi að hafa tónlistina eins sterka."

Hilmar segir að yfirleitt sé málum svo háttað með kvikmyndatónlist hans að tónlistin eigi ekki standa ein og sér, honum finnist það oft móðgun við tónlist og kvikmynd að skilja þar á milli. "Tónlistin við Engla alheimsins finnst mér aftur á móti vel geta staðið ein, enda er hún ekki að segja eins mikla sögu eins og oft er. Á disknum er hún í réttri tímaröð miðað við myndina og það gengur til að mynda vel upp finnst mér og þróunin í henni greinileg. Ekki má þó gleyma því að á disknum er ekki nema um helmingur af tónlistinni í myndinni."

Ræturnar á Gauknum

Þeir Georg Hólm, Orri Páll Dýrason og Kristinn Sæmundsson segja stutta sögu þegar þeir eru spurðir um hvers vegna Sigur Rós eigi lag í myndinni og hvers vegna það séu einmitt þau lög sem falla svo vel að henni: "Þetta á allt rætur að rekja til tónleika sem við héldum á Gauknum þar sem okkur langaði að gera eitthvað öðruvísi og taka lög eftir aðra, nokkuð sem við höfðum ekki gert áður. Við lékum þar þrjú lög, Ég fæ jólagjöf, af því þetta var rétt fyrir jól, Bíumbíumbambaló og dánarfregnastefið vegna þess að við höfum haldið upp á það frá því við vorum börn. Þessi lög áttu bara að heyrast á þessum tónleikum, en þegar stóð til að gefa út tólftommu fannst okkur kjörið að setja þau á hana til að vera ekki að setja þrjú eða fjögur lög af stóru plötunni. Við bókuðum okkur því í hljóðver en rétt þegar við vorum búnir að því kom ósk frá Íslensku kvikmyndasamsteypunni um að fá lag í myndina, þetta var eins og einhver hefði stjórnað þessu að ofan."

Hilmar segir að upphafleg hugmynd hafi verið sú að hafa lag í endanum "og Friðrik vissi strax hvaða hljómsveit hann vildi fá til að leggja til lag, enda hafði hann heyrt í Sigur Rós. Þegar hann sagði mér frá því hvað hann væri að pæla sagði hann að þeir Sigur Rósar strákar væru tónlistarlegir launsynir mínir, sem ég tók mjög fagnandi enda hlustaði ég varla á nokkuð annað á síðasta ári en Ágætis byrjun. Það kom líka í ljós að það sem þeir voru að gera passaði einstaklega vel inn í myndina, eins og það hefði verið samið fyrir hana.

Ég breytti þó aðeins röðinni hjá þeim, því þeir byrjuðu á Bíumbíumbambaló og enduðu á dánarfregnum og þannig er það á plötunni. Mér fannst aftur á móti fara betur á því í myndinni að snúa þessu við og því er þetta þannig þar."

Hljómsveitarverk í stærstu merkingu þess orðs

Á tónleikunum í MS 15. mars hyggjast þeir Hilmar Örn og Einar Már Guðmundsson, höfundur Engla alheimsins, standa fyrir uppákomu þar sem Einar les úr bókinni en Hilmar leikur undir. Í miðjum klíðum koma þeir Sigur Rósar drengir á svið og taka þátt í því sem fram fer og Hilmar Örn segir að það megi líta á það sem einskonar upphaf á samstarfi hans og hljómsveitarinnar.

"Við ætlum að semja saman hljómsveitarverk í stærstu merkingu þess orðs, verk fyrir rokkhljómsveit, strengjasveit og kór, þar sem við tökum fyrir Hrafnagaldur Óðins, sem er Eddukvæði sem var úthýst úr Eddukvæðunum fyrir tiltilli einhvers leiðinda Norðmanns og kenninga hans, sem því miður allt of margir hlustuðu á. Þetta kvæði á heima með Eddukvæðunum að mínu mati og verkið er ekki síst samið til að menn taki það aftur inn í Eddu."

Á tónleikunum verður flutt tónlist Hilmars en síðan tekur Sigur Rós við. Þeir Sigur Rósar piltar hyggjast leika áþekka dagskrá og þeir hafa flutt útlendingum undanfarið en bæta að minnsta kosti við einu lagi áður óspiluðu. "Við hefðum gjaran viljað hafa þau fleiri, en það hefur gefist svo lítill tími til að semja. Það verður þó eitt nýtt lag, meistaraverk Sigur Rósar hingað til."

Hægt er að hlusta á nokkur lög af disknum á mbl.is, þrjú lög eftir Hilmar og lög Sigur Rósar.