[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
ER þá komin röðin að Thoru Birch að vera stjarnan okkar fram á næsta sunnudag, en hún verður 22 ára laugardaginn 11. mars.

ER þá komin röðin að Thoru Birch að vera stjarnan okkar fram á næsta sunnudag, en hún verður 22 ára laugardaginn 11. mars. Þótt hún sé enn ung að árum hefur hún leikið í þrettán kvikmyndum, þar af er von á þremur þetta árið, en þessa dagana má sjá hana í kvikmyndinni "American Beauty" þar sem hún leikur eitt aðalhlutverkið, dóttur Kevin Spacey og Annette Bening; Jane Burnham. Áður hefur hún m.a leikið dóttur Harrison Ford í "Patriot Games" og "Clear and Present Danger".

Foreldrar hennar héldu að þau ættu von á strák og voru búin að ákveða að skýra hann Thor eftir þrumuguðinum, og það breyttist lítið þegar lítil stelpa leit dagsins ljós.

Thora hefur nú sjálfsagt ekki verið nein þruma þegar hún var yngri, því hún er fiskur og litlir fiskar eru mjög viðkvæmir þótt þeir geti verið svolitlir skaphundar, en umfram allt skapandi og dreymandi. Það hefur verið bæði gaman og erfitt fyrir hana að byrja að leika í sjónvarpsþáttaröð átta ára og annarri níu ára, því um leið og hún hefur fengið útrás fyrir sköpunargleði sína, hefur hana sjálfsagt oft langað bara heim til mömmu og pabba, því allir fiskar eiga það til að vilja flýja lífið og kaldan veruleikann til að njóta öryggis í eigin draumaheimi.

Stjörnurnar segja okkur að Thora sé að gera sér grein fyrir því að hún ein ræður sínum örlögum og vill taka í taumana, og þá í sambandi við framann. Líklegt er að hún kjósi að vinna með nýju fólki sem kann að meta það sem hún gerir í stað þess að þóknast þeim sem umkringja hana nú þegar. Kannski að hún skipti um umboðsmann eða segi honum til syndanna? En hún verður að passa sig að leyfa ekki litla skaphundinum að gelta eða innri dramadrottningu að ná yfirhöndinni ef hún vill ná sínu fram. Sérstaklega verður hún að gæta sín á afmælisdaginn sjálfan því á búgarðinum hennar í austurhluta Los Angeles fer tungl inn í tvíburamerkið um rismál, og þá á fólk það til að verða eirðarlaust og vilja breytingar strax! Það er reyndar af hinu góða ef maður hefur þolinmæði til að fylgja breytingunum eftir, og hana ætti fiskurinn Thora að hafa.

En það eru fleiri frægir fiskar að halda upp á afmælin sín þessa vikuna. Ungmeyjum um víða veröld þætti sjálfsagt gaman að komast í veislu á miðvikudaginn en þá eiga hetjurnar þeirra Freddie Prinze Jr . og James van der Beek Jr . afmæli, og verða 24ra og 23ja ára gamlir. Það má kannski reyna að senda þeim tölvupóst í gegnum aðdáendaklúbb.

Karlarmenn ættu hins vegar að reyna að gerast boðflennur á föstudaginn því þá eiga ofurgellurnar Eva Herzigova og Sharon Stone afmæli. Og þá er að reyna að finna út hvor verður 27 ára og hvor 42ja. Aldurinn er allavega ekki farinn setja mark sitt á þær stöllur.