LEIKKONAN Kate Winslet er ófrísk eins og kunnugt er orðið og þarf þess vegna að taka sér frí frá kvikmyndaleik í eitt ár.
LEIKKONAN Kate Winslet er ófrísk eins og kunnugt er orðið og þarf þess vegna að taka sér frí frá kvikmyndaleik í eitt ár. Hún átti að leika í myndinni Therese Raquin en ákveðið hefur verið að fresta tökum myndarinnar svo að Winslet geti leikið í henni er hún hefur fætt barnið sem verður hennar fyrsta. Hún er reyndar meðframleiðandi myndarinnar og hefur þess vegna eflaust fengið einhverju að ráða um aðalleikkonuna. "Kate er mjög hrifin af myndinni, þetta er henni mikilvægt hlutverk," sagði aðalframleiðandinn Nigel Stafford í yfirlýsingu. Hann og Winslet vona að leikkonan Judi Dench, sem hafði takið að sér eitt hlutverkið, geti beðið í eitt ár.