Guðlaug B. Guðjónsdóttir
Guðlaug B. Guðjónsdóttir
Guðlaug B. Guðjónsdóttir fæddist í Reykjavík 7. febrúar 1957. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi 1977 og bjó eftir það í Svíþjóð í tíu ár við nám og störf. Hún er menntuð sem fjölmiðla- og upplýsingafræðingur frá háskólanum í Jönköping. Hún starfaði hjá Kynningum og markaði frá 1988 og frá hausti 1997 hjá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur sem framkvæmdastjóri. Hún á eina dóttur barna.
Guðlaug B. Guðjónsdóttir fæddist í Reykjavík 7. febrúar 1957. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi 1977 og bjó eftir það í Svíþjóð í tíu ár við nám og störf. Hún er menntuð sem fjölmiðla- og upplýsingafræðingur frá háskólanum í Jönköping. Hún starfaði hjá Kynningum og markaði frá 1988 og frá hausti 1997 hjá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur sem framkvæmdastjóri. Hún á eina dóttur barna.

Nýlega hefur Krabbameinsfélag Reykjavíkur í samvinnu við tóbaksvarnanefnd gefið út námsefni í tóbaksvörnum fyrir tíunda bekk grunnskólanna. Áður var útkomið efni af sama tagi fyrir sjötta, sjöunda, áttunda og níunda bekk. Guðlaug B. Guðjónsdóttir er framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur.

"Yfirskrift námsefnisins fyrir tíunda bekk er; VERTU FRJÁLS, reyklaus og skýr skilaboð. Í þessu námsefni er ætlast til að nemendur undirbúi fræðslu til yngri nemenda. Þetta byggist á kenningum um jafningjafræðslu. Samhliða útgáfunni senda Krabbameinsfélagið og tóbaksvarnanefnd árlega öllum foreldrum í áttunda til tíunda bekk upplýsingar um tóbaksvarnir og skaðsemi tóbaks."

-Hefur þessi útgáfa öll skilað miklum árangri?

"Já við sjáum árangur þar sem skólarnir sinna tóbaksvörnum vel og foreldrarnir eru góð fyrirmynd. Margir skólar sinna tóbaksvarnafræðslu mjög vel en ekki allir. Grunnskólunum er ætlað samkvæmt aðalnámskrá að sinna tóbaksvörnum sem stórum þætti í heilbrigðisuppeldi.

Þegar höfum við gefið út námsefni fyrir nemendur sjötta til níunda bekkjar. Þetta átak hófst 1997 og er grunnskólanum að kostnaðarlausu. Einnig höfum við áhuga á að undirbúa námsefni fyrir yngri bekki."

-Hafið þið fyrirmynd erlendis frá við gerð þessa námsefnis?

"Námsefni fyrir sjötta bekk er alveg íslenskt. Fyrir sjöunda bekk er námsefnið samkvæmt fyrirmynd frá Bretlandi en staðfært. Áttunda til níunda bekkjar efnið er samkvæmt norskri fyrirmynd."

-Er svipað ástand hér í reykingamálum og í þessum löndum sem þú nefndir?

"Já, ég myndi halda að í Noregi væri áþekkt ástand. Við erum þó betur stödd en önnur nágrannalönd okkar. Það sama gildir á Vesturlöndum um hvaða aðferðir tóbaksframleiðendur nota til að koma söluvöru sinni á framfæri, t.d. í gegnum tónlistarmyndbönd og kvikmyndir."

-Hefur tóbaksvarnaátakið skilað árangri að þínu mati?

"Hvað snertir börn og unglinga þá sýndi síðasta könnun héraðslækna og Krabbameinsfélagsins að daglegur reykingar 12 til 16 ára grunnskólanema höfðu aukist um 0,6% frá árinu 1994.

Það er auðvitað alltaf slæmt þegar reykingar aukast en það er einkum hjá yngra fólki sem þær hafa aukist. Ef teknar eru tölur úr könnun Hagvangs fyrir tóbaksvarnanefnd hafa reykingar 18 til 69 ára fólks minnkað um 1% á ári frá 1996. Núna reykja um 27% fólks í þessum aldurshópi."

-Fólk talar um að mikið sjáist af reykjandi fólki.

"Ég tel að ástæðan sé að reykingafólk er orðið sýnilegra, þar sem ýmsar takmarkanir hafa verið settar á aðstöðu fyrir reykingafólk, t.d. á vinnustöðum, í skólum og á skólalóðum og opinberum stöðum. Einnig eru heimilin farin að setja takmörk, margir leyfa ekki reykingar innan veggja heimilisins, þess vegna sést það fólk sem reykir fremur á almannafæri. Fólk er orðið miklu meðvitaðra um nauðsyn þess að hætta að reykja og í kjölfar reglugerða á vinnustöðum hafa borist margar fyrirspurnir frá fyrirtækjum um að fá reykbindindisnámskeið fyrir starfsfólk."

-Hafa slík námskeið skilað árangri?

"Námskeiðin skila tvímælalaust árangri en hann fer talsvert eftir samsetningu hópanna, einnig skiptir máli að fyrirtækin borgi ekki fyrir starfsfólk sitt á námskeiðin, heldur t.d. verðlauni fólkið eftir árs bindindi, svo sem með endurgreiðslu á námskeiðsgjaldi."

-Tóbaksframleiðendur hafa reynt að koma til móts við heilbrigðissjónarmiðið með því að framleiða "minna óhollar" sígarettur en áður, er raunverulegur ávinningur að þessu framtaki?

"Nei, svo er alls ekki, nýjustu kannanir sýna að fólk fer að reykja öðruvísi, það reykir meira og dregur reykinn dýpra ofan í sig, sem veldur því t.d. að lungun verða fyrir hættulegri ertingu. Hugtakið "light"-sígarettur er blekking - það viðheldur í raun reykingunum þannig að fólk gerir minna í því að reyna að hætta. Þetta er því alls ekki til bóta."

-Hver eru helstu framtíðaráformin í tóbaksvörnum á næstunni?

"Fyrst og fremst að leyfisskylda sölu á tóbaki og auka eftirlit, fækka sölustöðum og hækka verð."