Unnið var að því að setja upp Kia-skiltið á nýja umboðinu í Flatahrauni á föstudag.
Unnið var að því að setja upp Kia-skiltið á nýja umboðinu í Flatahrauni á föstudag.
FIMM aðilar sóttust eftir að taka að sér umboð fyrir Kia hér á landi en eins og kunnugt er hefur Jöfur hf. hætt með umboðið. Suzuki-umboðið ehf.

FIMM aðilar sóttust eftir að taka að sér umboð fyrir Kia hér á landi en eins og kunnugt er hefur Jöfur hf. hætt með umboðið. Suzuki-umboðið ehf., sem hefur selt vélhjól, utanborðsmótora og rafstöðvar frá Suzuki, hefur nú tekið við umboðinu og var formlega skrifað undir það sl. föstudag. Stefán Tómasson, einn eigenda Suzuki-umboðsins, segir að allar gerðir Kia-bíla verði seldar og þjónusta veitt fyrir þá. Umboðið keypti um 150 Kia-bíla af Búnaðarbankanum, sem bankinn leysti til sín frá Jöfri. Pride, minnsti bíllinn, verður ódýrastur á 849.000 kr., Sephia kostar frá 1.290.000 kr. og fæst bæði beinskiptur og sjálfskiptur, Shuma kostar frá 1.390.000 kr. með 1,8 l vél, Clarus er til í langbaks- og stallbaksgerð og kostar nálægt 1.700.000 kr. Styttri Sportage-jeppinn kostar frá 1.790.000 kr. en Grand Sportage rétt undir 2 milljónum kr. Carnival-fjölnotabíllinn er til með bensín- og dísilvél, með og án sjálfskiptingar.

Stefán segir að mikil breyting verði á fyrirtækinu með tilkomu Kia-umboðsins. Húsnæði fyrirtækisins í Skútahrauni var selt sl. haust og hús í Flatahrauni 31 keypt þar sem fyrirtækið verður til húsa. 220 fermetra sýningarsalur verður fyrir bílana og ofan við hann er skrifstofuhæð.

Stefán segir að áætlað sé að selja 450 bíla á ári en hugsanlega verði salan meiri á þessu ári þar sem fyrirtækið þarf að losa sig við lager í ákveðnum tegundum.