Veruleiki í drauma minna veröld sem fyrnist ei í fjölvíddum alheimsins sem gaf mér hugsun um sig hjartnæm snerting langana minna í ljósi logandi sálar í skini stjarnanna í glitvefi mánanna í eldfljóti sólarinnar við dans vetrarbrauta finn ég gleði þess...
Veruleiki í drauma minna
veröld
sem fyrnist ei
í fjölvíddum alheimsins
sem gaf mér hugsun um sig
hjartnæm snerting langana minna
í ljósi logandi sálar
í skini stjarnanna
í glitvefi mánanna
í eldfljóti sólarinnar
við dans vetrarbrauta
finn ég gleði þess er gleðina gaf
snerti ást þess er ástina veitti
lifi sælu þess er lífið gat
draumur í veröld veruleikans.
Höfundurinn er húsmóðir í Reykjavík.