Dæmi 3. Ondes Martenot.
Dæmi 3. Ondes Martenot.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
EKKI er unnt að rita um tónlist tuttugustu aldar án þess að minnast öðru hverju á Wolfgang Amadeus Mozart.

EKKI er unnt að rita um tónlist tuttugustu aldar án þess að minnast öðru hverju á Wolfgang Amadeus Mozart. Þótt liðin séu meir en tvö hundruð ár síðan þessi mikli snillingur var uppi, hafa vinsældir verka hans trúlega aldrei verið meiri en einmitt á þeirri öld sem nú er að líða. Ástæðan er auðvitað fyrst og fremst fegurð og áhrifamáttur verkanna. En fleira kemur til. Ekki er öllum ljóst að Mozart var öðrum þræði djarfur tilraunamaður og gerði margt til þess að finna nýjar leiðir til tjáningar í tónlist. Ekki hafa margir náð eins góðum árangri með djarfri krómatík og Mozart. Má t.d. nefna strengjakvartett hans í c-dúr K. 465, sem dæmi um það. Svipað má segja um tök hans á hljóðfalli. Lokaatriðið í óperunni Don Giovanni, sem er einhver áhrifamesta óperutónlist sem samin hefur verið, byggir á svonefndum polyritmum. Þar eru tvær takttegundir í gangi í senn. Í sama verki er að finna tilraunir með staðsetningu hljóðsins í rúminu. Allt hefur þetta verið meðal tískuviðfangsefna tónskálda á tuttugustu öld. Mozart er almennt ekki talinn byltingarmaður í tónlist. Því ræður frekar hinn óvenjulegi hæfileiki hans til þess að fela list sína og færni, en að hann hafi ekki leitað nýjunga.

Tilviljun í tónlist

Mozart samdi einnig tónlist fyrir vél. Orgelstuck fur eine Uhr, K. 608, er eitt dæmi um slíkt. Vitneskjan um þetta yljar mörgum raftónlistarmanninum um hjartarætur. Þá gerði Mozart tilraunir með tónsmíðar eftir teningskasti. Er þar komið að viðfangsefni sem ræða þarf frekar, hlutverki tilviljunar í tónlist.

Árið 1751 kom út rit eftir William Hayes, enskt tónskáld og organleikara, sem nefndist "The Art of Composing Music by a Method Entirely New, Suited to the Meanest Capacity". Aðferð Hayesar var í stystu máli sú að dreifa blekslettum á nótnablað með því að dýfa pensli í blek og draga fingur yfir oddinn. Útkoman réðst af tilviljun. Þetta var nokkuð sem allir gátu gert.

Með þessu dró Hayes athygli manna að því sem lengi hafði verið vitað. Tónlist ræðst að einhverju leyti af tilviljunum, a.m.k. frá sjónarhóli tónskáldsins. Meðan nótnaskrift var ófullkomin réðst hljómur tónverks að verulegu leyti af framlagi flytjandans. Það var þó að því leyti fyrirsjáanlegt að flytjandinn hafði oftast fengið þjálfun og lærdóm í ríkjandi tónlistarhefð og hlaut því flutningurinn að mótast af því. Jafnvel nú til dags þegar menn hafa á takteinum afar nákvæma nótnaskrift ríkir ávallt nokkur óvissa um hvernig verk hljómar í flutningi. Óvissan getur verið töluvert mikil þegar um ný verk er að ræða, en er einnig til staðar í flutningi alkunnra gamalla verka.

Fiðlukonsert Beethovens í d-dúr er skýrt skrifað verk. Því til viðbótar kemur löng reynsla í flutningi sem mótar hefðina sem tónlistarmennirnir fylgja. Þrátt fyrir þetta er greinilegur munur á flutningi manna á verkinu og engin fullkomin vissa er um útkomuna fyrirfram þegar verkið er flutt á tónleikum.

Spuni

Tilviljun eða óvissa um útkomu er enn frekar fyrir hendi í spuna, improvisation. Spuni er eldgamalt fyrirbrigði í tónlist og lifir góðu lífi enn þann dag í dag. Þegar leikið er af fingrum fram virðist sem flytjandinn sé að skapa tónlistina á sama augnabliki og hún er flutt. Fylgir því oft sérstök spenna og eftirvænting. Hitt er annað mál að sköpun augnabliksins er venjulega ekki eins mikil og ætla mætti. Tónlistarmenn hafa ríka tilhneigingu til að spila í spuna það sem þeir kunna fyrir. Þetta má t.d. skýrt heyra í jass-tónlist, þar sem spuni skipar veglegan sess. Það er nokkurn vegin sama hvert lagið er sem spunnið er út frá, svipaðar hendingar og stef eru almennt ráðandi, enda þótt þær kunni að heyrast í breyttu samhengi.

Teningstónlist

Nú á dögum er lýsingarorðið aleatoric notað um tónlist sem byggir að verulegu leyti á tilviljunum. Orðið er dregið af alea í latínu sem merkir teningur. Í verki sínu "Musicalisches Wurfenspiel", K 516, notaði Mozart tvær talnatöflur og tvo teninga til að velja milli kosta í tónsmóðinni. Önnur taflnanna er sýnd í dæmi 1. Niður með vinstri hlið töflunnar eru þær 11 tölur, frá 2 til 12, sem eru mögulegar útkomur þegar tveimur teningum er kastað. Fyrir ofan töfluna eru 8 tölur, sem endurspegla hefðbundinn hendingafjölda í klassískri tónlist. Þessar tölur eru í töflunni tengdar 176 töktum af fyrirfram saminni tónlist. Með því að kasta teningunum átta sinnum fást fyrstu átta taktarnir í nýja verkinu. Aðferðin er síðan endurtekin. Önnur tafla er notuð til að fá andstætt stef. Brot úr útkomunni hjá Mozart má sjá dæmi 2.

Hrein tilviljun

Í þessu dæmi eru tilviljuninni settar miklar skorður, enda er árangurinn í greinilegum klassískum stíl. Tuttugustu aldar menn hafa gengið mun lengra í tilraunum sínum og vangaveltum. Vinsæl hefur verið sú aðferð að blanda spuna inn í verk. Þá er hljóðfæraleikurunum gefinn kostur á að spreyta sig innan einhverra marka. Má nefna tónskáld eins og Pierre Boulez, Luciano Berio og Witold Lutoslawski meðal þeira sem slíkri tækni hafa beitt. Aðrir hafa gengið lengra og er Bandaríkjamaðurinn John Cage líklega þeirra þekktastur. Cage lýsti því sem markmiði sínu að útrýma tónskáldinu úr tónverkinu. Hann notaði kínverskt rit, I Ching frá því um 3000 fyrir Krist, sem véfrétt til þess að svara spurningum um gang tónsmíðarinnar. Eitt frægasta verkið eftir Cage nefnist "4''33". Í því er hljóðfæraleikari látinn sitja við eða standa með hljóðfæri þá tímalengd sem felst í nafni verksins. Tónlistin er það sem heyrist í áheyrendum eða í umhverfi meðan á flutningi stendur. Margt fleira skemmtielgt datt Cage í hug í svipuðum anda, þótt ekki verði frekar rakið hér.

Listin endurskilgreind

Cage var einnig áhrifamikill í listastefnu sem nefnist experimentalismi. Viðfangsefni hennar er að endurskilgreina og útvíkka listina, en slík umræða hefur verið mjög fyrirferðarmikil í öllum listum á tuttugustu öld. Tónverkum í þessum anda fylgja gjarnan greinargerðir um heimspekilegan grunn verksins, sem stundum getur verið upplýsandi um þann hugmyndaheim sem verkið er sprottið úr. Stundum eru menn aðeins að skilgreina sig frá vandanum. Oftast er á ferðinni venjuleg sölumennska, sem eltir alla listamenn nútímans eins og vofa, og erfitt er að komast undan.

Ekki er rúm til þess hér að lýsa öllum þeim fjölbreyttu aðferðum sem tónskáld hafa beitt til þess að hagnýta sér tilviljun í tónlist. Menn eru þó almennt sammála um nokkur meginatriði. Tilviljun er til staðar í allri tónlist að einhverju leyti. Hins vegar virðist óhugsandi að semja verk sem ræðst algjörlega af tilviljunum. Auðvelt er að geta sér til um líklega útkomu úr verkinu "4''33". Tónskáld sem fer út á götu með hljóðnema gengur ekki svo mjög gruflandi að því sem heyrast mun. Svo lengi sem einhver atbeini manns er til staðar hafa tilviljuninni verið skorður settar.

Þessar vangaveltur tengjast hlutverki véla í tónlist, enda er teningur vél. Mozart samdi, eins og áður sagði, tónlist fyrir klukkuverk. Tuttugustu aldar menn hafa haft mun fullkomnari vélabúnað til tónsköpunar. Hljóðgervlar og tölvur hafa náð tæknilegri fullkomnun og eru mikið notaðar til margvíslegra tónlistarstarfa.

Rafmagnshljóðfæri

Þótt rafmagnsharpsicord hafi verið smíðað í París 1761, var það ekki fyrr en í upphafi tuttugustu aldar sem smíði rafmagnshljóðfæra komst á verulegan skrið. Stórt skref í þróun þessara hljóðfæra var stigið 1928, þegar Maurice Martenot smíðaði hljóðgervil sem hann kallaði Ondes Martenot. Með hljóðgervlum nútímas er hægt að búa til nánast hvaða hljóð sem er. Þeir byggjast á hljóðgjöfum, svonefndum oscillatorum, sem búa til hljóðbylgjur. Þeim er síðan hægt að breyta á ýmsa vegu með öðrum tækjum. Tilkoma þessara hljóðfæra olli byltingu í tónlist. Nú voru tónskáld ekki lengur háð hljóðfæraleikurum. Ekkert hljóðfall var svo flókið að ekki mætti láta hljóðgervil spila það. Allir tónstigar voru mögulegir og allir hugsanlegir litir. Möguleikarnir virtust ótæmandi.

Til þess að hlustendur þyrftu ekki að horfa aðeins á hátalara á tónleikum, var upplagt að tengja hina nýju tónlist einhverri sjónrænni reynslu, myndlist, kvikmyndum, ljósum. Í tilefni af heimssýningunni í Brussel 1958 samdi Frakkinn Edgar Varese verkið "Poéme Électronique". Í því stýrði hljóðflutningsbúnaðurinn fjölda ljóskastara og sýningarvéla. Verkið gekk í sex mánuði fyrir tugþúsundum áheyrenda.

Nú var einnig stálþráður og segulband komið til sögunnar. Menn tóku upp á því að taka ýmis umhverfishljóð upp á band og klippa og splæsa saman. Slík tónlist er nefnd Musique concrete og voru tveir Frakkar, Pierre Schaeffer og Pierre Henry þar í fararbroddi. Framan af skiptust raftónlistarmenn í hópa, þar sem sumir notuðu upptökur af náttúrulegum hljóðum, en aðrir tilbúin hljóð. Þjóðverjinn Karl Heinz Stockhausen, sem var meðal fremstu raftónlistarmanna á eftirstríðsárunum, notaði hvort tveggja í ýmsum verkum sínum t.d. Gesang der Junglinge.

Ekki aðeins hafa menn blandað saman rafhljóðum af ólíkum uppruna heldur hefur sú aðferð að blanda saman rafhljóðum og hefðbundnum hljóðfæraleik notið vinsælda. Hefur það verið gert með fjölbreyttum hætti. Meðal annars hafa ýmis tónskáld, sem almennt semja fyrst og fremst fyrir hefðbundin hljóðfæri, blandað rafhljóðum inn í verkin eða notað tölvutækni til þess að breyta hljóðum meðan á flutningi stendur.

Tölvutónlist

Rafhljóð af því tagi, sem rædd hafa verið og framleidd eru með oscillatorum kallast analog. Þau eru að uppbyggingu eins og hljóð birtast í náttúrunni, jöfn og samhangandi. Í tölvutónlist er grunnurinn annar. Tölvur eru það sem kallast digital. Þær setja boðskap sinn fram í bútum. Grundvöllur þeirra er sú staðreynd að hægt er að nota aðeins tvær tölur, 0 og 1, til þess að lýsa öllum öðrum tölum. Innviðum tölvunnar, sem í augum okkar óinnvígðra eru óskiljanlega flóknir, má lýsa sem geysistóru smágerðu safni slökkvara sem gera ekki annað en að kveikja og slökkva í gríð og erg. Styrkur tölvunnar felst í því að geta meðhöndlað mikið magn upplýsinga á miklum hraða.

Þessir kostir eru mikilvægir frá sjónarhóli raftónlistarmannsins því þeir veita honum meira og nákvæmara vald yfir efniviðnum. Hljóð framleitt af tölvu er að sjálfsögðu í bútum. Því þarf að breyta í analog hljóð. Viðfangsefnið er sambærilegt við kvikmyndina, sem einnig er digital í eðli sínu. Þar eru teknar stakar ljósmyndir í röð. Þegar myndaröðin er sýnd á ákveðnum hraða sýnist hún lýsa jafnri atburðarás. Sérstakt tæki er notað til að breyta digital hljóði í analog. Þá er einnig hægt að fara öfugt að og tak analog hljóð og breyta því í digital. Þannig er unnt að gera hljóðupptökur á einhverju hljóði og nota digital tæknina til þess að breyta því í smáatriðum. Digital tækni er einnig beitt um upptökurnar sjálfar. Nefnist það á ensku sampling. Með þeim hætti er hægt að taka upp með mikilli nákvæmni t.d. bút af söngrödd. Bútinn er hægt að margfalda og umbreyta honum þar til komið er heilt kórverk.

Tónsmíðar fyrir alla

Markaðurinn hefur séð til þess að ótúlega fjölhæfir hljóðgervlar, byggðir á blandaðri tækni, eru aðgengilegir hverjum sem er. Þeim er unnt að stýra með venjulegri heimilistölvu með tónlistarforritum, sem til eru í miklu úrvali. Tungumálið sem hljóðgervlar nota til samskipta nefnist Midi. Þá eru til forrit sem hjálpa tónskáldinu við sjálfa samningu verksins með því að taka fyrir það ýmsar ákvarðanir samkvæmt forskrift. Þar getur tölvan komið í stað tenginganna og talnatöflunnar í dæminu um Mozart sem um var rætt.

Tölvur nýtast tónlistarmanni nútímans í fleira en að semja raftónlist. Forrit til nótnaskriftar hefa tekið miklum framförum. Nú getur tónskáldið prentað verk sín út með engu lakari gæðum en bestu útgáfufyritæki státa af. Unnt er að skrifa verkið í tölvu, láta hana síðan spila það í gegn um hljóðgervil og í lokin prenta verkið út í raddskrá og einstökum röddum. Þessir kostir eru í vaxandi mæli notaðir einnig til kennslu. Ekki þarf lengur kunnáttu í hlóðfæraleik til þess að geta fiktað við tónsmíðar.

Dásemdir tækninnar eru miklar. Hvort hún hafi eitthvert gildi við lausn þeirra viðfangsefna listarinanr sem mestu skipta er hins vegar mikið álitamál. Tölvutónlist hefur fengið mikla útbreiðslu i nytjatónlist hvers konar, þar sem fagurfræðielgar kröfur eru litlar. Í fagurtónlist hafa vinsældirnar látið á sér standa. Ef til vill stafar það af því að tónlist er tjáningartæki manna í milli. Fólk virðist, a.m.k. enn um sinn, frekar kjósa að hlusta á annað fólk en vélar, hversu fullkomnar sem þær eru. Glíma tónskáldanna við viðfangsefni sín virðist í aðalatriðum óháð tækni. Hverju hefði það breytt fyrri gamla Bach að hafa aðgang að Steinway flygli? Varla nokkru sem máli skiptir. Machaut notaði fyrst og fremst mannsröddina í verkum sínum. Það virðist ekki hafa háð honum neitt. Tækni hvers tíma er góður spegill tíðarandans. Fyrir þá sem hafa áhuga á tíðarandanum er hún því mikilvæg. Aðrir sem ef til vill hrífast frekar af eilífðinni, geta leitt hana hjá sér ef þeim sýnist svo.