Julianne Moore og Anthony Hopkins.
Julianne Moore og Anthony Hopkins.
LEIKARINN Anthony Hopkins, ítalska leikkonan Francesca Neri, ítalski leikarinn Giancarlo Giannini og bandaríska leikkonan Julianne Moore voru saman komin í Flórens á Ítalíu á dögunum og er ástæðan sú að tökur á myndinni Hannibal eru að hefjast.
LEIKARINN Anthony Hopkins, ítalska leikkonan Francesca Neri, ítalski leikarinn Giancarlo Giannini og bandaríska leikkonan Julianne Moore voru saman komin í Flórens á Ítalíu á dögunum og er ástæðan sú að tökur á myndinni Hannibal eru að hefjast. Myndin sú verður framhald hinnar geysivinsælu Lömbin þagna en báðar myndirnar eru gerðar eftir sögum Thomas Harris og fjalla um mannætu nokkra sem vingast við alríkislögreglukonu. Það eru þau Anthony Hopkins og Julianne Moore sem fara með aðalhlutverkin en myndin verður tekin upp á næstu fimm vikum í Flórens.