Prentsmiðjan Oddi hf. hefur gefið út vörulista fyrir árið 2000. Vörulistinn er rúmlega 100 síður og í fréttatilkynningu segir að þar sé meðal annars að finna úrval af pappír, skrifstofuvörum, rekstrarvörum, skrifstofubúnaði og skrifstofuhúsgögnum.

Prentsmiðjan Oddi hf. hefur gefið út vörulista fyrir árið 2000. Vörulistinn er rúmlega 100 síður og í fréttatilkynningu segir að þar sé meðal annars að finna úrval af pappír, skrifstofuvörum, rekstrarvörum, skrifstofubúnaði og skrifstofuhúsgögnum. Jafnframt kemur fram að nú sé einnig hægt að panta prentverk, eins og t.d. nafnspjöld, eftir vörulistanum og fá verðáætlun meðan beðið er.

Vörulista Odda er hægt að nálgast í verslun fyrirtækisins að Höfðabakka 3 en einnig er hægt að hringja og panta hann símleiðis sem og í gegnum heimasíðu fyrisrtækisins sem er www.oddi.is.