Handknattleiksdeild Stjörnunnar í Garðabæ hyggst ræða við Siggeir Magnússon, aðstoðarþjálfara karlaliðs Aftureldingar í Mosfellsbæ, um að taka að sér þjálfun kvennaliðs Stjörnunnar fyrir næsta tímabil.
Handknattleiksdeild Stjörnunnar í Garðabæ hyggst ræða við Siggeir Magnússon, aðstoðarþjálfara karlaliðs Aftureldingar í Mosfellsbæ, um að taka að sér þjálfun kvennaliðs Stjörnunnar fyrir næsta tímabil. Siggeir hefur verið aðstoðarþjálfari Aftureldingar undanfarin misseri og varð í fyrra Íslands- og bikarmeistari með liðinu. Er búist við að Siggeir ræði við forsvarsmenn Stjörnunnar um helgina. Eyjólfur Bragason þjálfaði Stjörnuna á síðustu leiktíð en fljótlega eftir tímabilið var ljóst að hann yrði ekki áfram með það.