Sé til lengdar barnlaus bær, breyskjast hjartarætur, - þungt, ef vantar þann, er hlær, þyngra hinn, sem grætur. Ef að þróast þyrrkingsgjarn þústur innan veggja, hvað eitt lítið, blessað barn, bætir úr hvoru...
Sé til lengdar barnlaus bær,
breyskjast hjartarætur, -
þungt, ef vantar þann, er hlær,
þyngra hinn, sem grætur.
Ef að þróast þyrrkingsgjarn
þústur innan veggja,
hvað eitt lítið, blessað barn,
bætir úr hvoru tveggja!
Indriði Þórkelsson.
Höf.: Indriði Þórkelsson