HARÐUR árekstur varð milli tveggja bifreiða á gatnamótum Bugðusíðu og Austursíðu á Akureyri á fimmta tímanum á fimmtudag.

HARÐUR árekstur varð milli tveggja bifreiða á gatnamótum Bugðusíðu og Austursíðu á Akureyri á fimmta tímanum á fimmtudag. Ekki þurfti að flytja neinn á slysadeild vegna meiðsla en bifreiðarnar skemmdust talsvert og þurfti að flytja aðra þeirra á brott með kranabifreið.

Tildrög árekstursins voru þau að ökumaður annarrar bifreiðarinnar virti ekki biðskyldu á gatnamótunum með þeim afleiðingum bifreiðarnar lentu harkalega saman og kastaðist önnur þeirra á nálæga kyrrstæða bifreið og olli skemmdum á henni.