Múm-liðar eru fastagestir á matkránni Kabarett þar sem í boði er margt ljúffengra rétta.
Múm-liðar eru fastagestir á matkránni Kabarett þar sem í boði er margt ljúffengra rétta.
Þrátt fyrir að feta lítt troðnar slóðir í tónlistarsköpun sinni hefur hljómsveitin múm vakið ómælda athygli undanfarið, bæði heima og heiman. Hún er bjartasta vonin í íslensku tónlistarlífi og nýverið fékk breiðskífa hennar frábæra dóma í breska tónlistarritinu NME. Skarphéðinn Guðmundsson spjallaði við liðsmenn sveitarinnar yfir gúrkusúpu; um gangavörslu, vínilplötur, hljóðfæri og dönsk engi.

SÚPUILMURINN læddist mjúklega upp að nefi blaðamanns er hann rak það inn um dyrnar á matkránni Kabarett í Austurstræti. Þetta var um kvöldmatarleytið og í einum básnum sátu þétt saman að snæðingi krakkarnir í múm. Þeir voru að sporðrenna síðustu súpuskeiðunum og virtust saddir og sælir. "Hvernig var gúrkusúpan? - var í þeirri andrá kallað úr eldhúsinu og þau svöruð um hæl að hún hefði sannarlega yljað þeim um hjartaræturnar. Ofurlítið þreytuský sat yfir bás fjórmenninganna; erfiður vinnudagur var að baki. Gunnar Örn Tynes og Örvar Smárason Þóreyjarson vinna báðir í grunnskóla, Gunnar sem gangavörður og Örvar sem stuðningsfulltrúi en tvíburasysturnar Gyða og Kristín Valtýsdætur eru í menntaskóla. Gunnar Örn viðurkennir að hann sé kannski ekki nógu harður við krakkana: "Það virkar ekki á krakkana að vera harður eða grimmur. Þeim finnst reyndar svolítið skrítið að ungur maður nenni að vera í slíku starfi."

En svona er nú hinn blákaldi veruleiki þessara metnaðarfullu ungu tónlistarmanna; þeir þurfa að hafa í sig og á eins og allir aðrir en það hefur þeim ekki enn tekist með tónlistarsköpuninni einni saman og eiga að sjálfsögðu þann draum heitastan að geta helgað sig tónlistinni alfarið. Það stefnir í að sá draumur geti ræst fyrr en seinna. Breiðskífan "Yesterday Was Dramatic - Today Is OK" sem kom út um síðustu jól hefur verið hlaðin lofi bæði heima og heiman og nýverið var sveitin valin bjartasta vonin í íslensku tónlistarlífi. Morgundagurinn virðist því þeirra.

Bæði m-in lítil eða stór

En hvað um þennan dramatíska gærdag; hvernig varð múm til?

Örvar: "Ég og Gunnar Örn vorum fyrst saman í rokksveitinni Andhéra en fórum að vinna raftónlist til hliðar því við höfum alltaf haft mun meiri áhuga á henni. Árið 1998 gáfum við út okkar fyrstu plötu undir nafni múm sem var önnur hlið stuttrar breiðskífu á móti Spúnk."

Var tónlistin frábrugðin því sem seinna varð?

Gunnar Örn: "Nei. Hún var eðlilegt upphaf þróunarinnar."

Hvaðan kemur nafnið múm?

Örvar: "Það er því miður ekki til nein flott saga á bak við það. Getur þú ekki bara skáldað einhverja góða fyrir okkur?"

Ykkur er illa við að það að Múm (smá stríðni blaðamanns) sé skrifað með stórum staf?

Gunnar Örn: "Já, en það hefur með útlitið að gera. Annaðhvort viljum við að bæði m-in séu með litlum eða stórum, ekki sitthvort, það lítur svo illa út."

Hvenær komuð þig síðan inn í myndina, stelpur?

Gyða: "Það var rétt fyrir jólin 1998 að þeir voru fengnir til þess að gera tónlist fyrir Náttúruóperuna í MH sem við Kristín tókum þátt í að flytja. Þannig lágu leiðir okkar fjögurra saman og þá urðum við í múm fjögur."

Hvernig breyttist múm við tilkomu stelpnanna?

Örvar: "Við einblíndum mun meira á rafrænu stefnuna þegar við vorum tveir."

Gunnar Örn: "Við vorum sífellt að fikta og þreifa fyrir okkur en með tilkomu stelpnanna urðu þær þreifingar markvissari og ákveðin stefna varð til. Það var mjög hollt fyrir okkur Örvar að finna einhverja sem eru á okkar bylgjulengd því við höfðum verið hálfhornreka og sambandið satt að segja hálfinnhverft."

Gyða: "Við erum kannski núna fyrst orðin hljómsveit en þó erum við fyrst og síðast perluvinir. Við værum örugglega alltaf saman þótt múm væri ekki til."

Hvað komuð þið systur þá með inn í tónlist múm?

Kristín: "Þegar við hittum strákana þá voru tölvur fyrir okkur mjög undarleg fyrirbæri."

Örvar: "Við Gunnar Örn héldum að lögin höfðu náð eins miklum þroska og þau gátu en með tilkomu stelpnanna opnuðust gáttir. Þá fórum við að gefa fleiri hljóðfærum gaum og hugmyndirnar voru ekki eins bundnar við tölvurnar."

Örvar: Höfðuð þið Kristín og Gyða áður fengist við tónlist?

Kristín: "Já, frá unga aldri en við höfðum aldrei verið í neinni hljómsveit en það hafði alltaf verið svona fjarlægur draumur."

Gyða: "Við gældum alltaf við að geta búið til tónlist en það varð einhvern veginn aldrei neitt úr því fyrr en við hittum Gunnar og Örvar."

Tekið upp með einni tölvu og hljóðnema

Hvað tók við af fjölguninni?

Kristín: "Við unnum nokkur lítil verkefni árið 1999, aðallega í samstarfið við aðra, t.d. Músíkvat og Andra Snæ Magnason skáld."

Hvenær hófst vinnan að breiðskífunni?

Gyða: "Við vorum að vinna að henni samhliða og með pásum tók það okkur 9 mánuði að fullklára hana."

Mættuð þið í hljóðveri með fullskapað efnið?

Gunnar Örn: "Það var að miklu leyti tilbúið en það gerðist samt mjög margt í hljóðverinu. Við erum alltaf að gera einhverjar tilraunir sem leiða stundum til einhvers betra en fyrir hafi verið áætlað. Við tókum heldur ekki upp í eiginlegu hljóðveri heldur í litlu herbergi þar sem við höfðum okkur til halds og trausts eitt stykki tölvu og hljóðnema."

Kristín: "Það voru mjög skrýtnar og erfiðar vinnuaðstæður. Við vorum alveg að kafna í þessu litla loftlausa herbergi. Það var ekki hægt að opna glugga þannig að til þess hreinlega að halda lífi þurftum við að fá okkur ferskt loft með reglulegu millibili."

Notuðuð þið þá vinnuaðferð til þess að reyna að koma til skila ákveðinni stemmningu innilokunar og drunga?

Kristín: "Einmitt ekki því tónlistin er að okkar mati björt og víðáttuleg."

Kristín: "Við náum til þeirra sem við viljum ná til og sá hópur er ekki stór."

Nú hefur mönnum verið tíðrætt um sérstaka hljóðfæraskipan og áhuga ykkar á því að reyna við ný hljóðfæri; hvað liggur að baki?

Gunnar Örn: "Við setjum okkur engin mörk. Ef okkur langar að prófa að nota eitthvað þá gerum við það og ef það kemur vel út þá notum við það. Því höfum við ekki neina fasta hljóðfæraskipan og á tónleikum spilum við á það sem okkur lystir hverju sinni. Það veitir okkur óendanlegt frelsi og fjölbreytileika."

Örvar: "Tónlistin er hins vegar byggð að mestu á rafrænum grunni. Síðan reisum við á þeim grunni með ólíkum hljómum og hljóðfærum til blæbrigða."

Erum engir popparar

Eruð þið að hafna hinni "hefðbundnu" hljóðfæraskipan?

Saman í kór: "Nei, alls ekki!"

Gyða: "Við spilum oft á gítar og bassa á tónleikum og við eigum meira að segja lítið trommusett, sem við reyndar notum mjög sjaldan."

Þið lítið ekki á ykkur sem poppara?

Saman í kór: "Nei!"

Örvar: "Ef poppið miðast út frá því að reyna að selja þá erum við ekki popparar."

Gunnar Örn: "Það er hættulega auðvelt að láta markaðinn hafa áhrif við tónlistarsköpunina."

Gyða: "Og reyndar þegar farið að reyna að beygja okkur að kröfum markaðsins, t.d. með því að reyna að fá okkur til þess að syngja meira."

Þið segið sjálf að tónlist ykkar kalli ekki á breiðan hlustendahóp; er þá ekki nauðsyn að ná að stækka hann með því að leita út fyrir landsteinana?

Gunnar Örn: "Jú, hiklaust. Við höfðum til þröngs hlustendahóps hér heima og getum engan vegin lifað á því. Þótt við munum áfram höfða til þröngs hóps á erlenda vísu þá er sá þröngi hópur kannski það stór að okkur verður kleift að lifa á tónlistinni, sem er höfuðmarkmiðið."

Platan hlaut fádæma lofsamlegar umsagnir, bæði heima og heiman, en hefur hún selst eitthvað?

Örvar: "Við höfum ekki hugmynd um það, fylgjumst ekki með því. Hún hefur af skiljanlegum ástæðum ekki fengið neina spilun á útvarpsstöðvunum sem hefur alltaf sitt að segja með söluna en við erum afar ánægð með þær viðtökur sem platan er að fá."

Þið eruð þegar farin að marka nokkuð djúp spor erlendis; hafið m.a. fengið rífandi umsagnir í þýskum blöðum og svo gaf NME ykkur 8 af 10 í einkunn á dögunum?

Gunnar Örn: "Okkur hefur verið sagt frá þessum þýsku dómum en getum ekki sannreynt því við skiljum ekki þýsku. Við sáum hins vegar NME dómin og erum glöð yfir honum."

Hefur þetta aukið möguleikana á stórum samningi eða opinberri útgáfu á heimsvísu?

Örvar: "Plötufyrirtæki okkar hérna heima (TMT-Entertainment) mun gefa hana út á heimsvísu en sú þróun er ekki enn kominn nógu langt til að hægt sé að merkja árangur. Það er óljóst hvað síðan tekur við og engir samningar hafa verið gerðir um næstu plötur. Við viljum helst ekki binda okkur langt fram í tímann."

Unnendur gamla vínilsins

Útgáfa á Netinu ætti kannski að henta ykkur einna best?

Örvar: "Eiginlega ekki því við erum öll langhrifnust af gamla vínilnum."

En eru ekki samt meiri möguleikar á því að þið náið til flestra í gegnum Netið?

Örvar: "Jú, kannski en við viljum höfða fyrst og fremst til þeirra sem eru á sömu nótum og við, þ.e. þeirra sem fá mest út úr því að gramsa í plötubúðum og uppgötva tónlistina upp á gamla mátann."

Gyða: "Okkur þykir líka svo vænt um plötuumslögin."

Er tónlistin eitthvað að breytast hjá ykkur?

Gyða: "Já, hún er ekki eins léttleikandi. Hún er yfirvegaðri og kannski eitthvað þyngri. Það á kannski eitthvað að breytast með sólinni."

Stendur til að fara út í sólina í sumar?

Örvar: "Já við ætlum að fara til Danmerkur og vinna næstu plötu í sumarhúsi þar. Við ætlum alfarið að vinna hana ein og höfum fjárfest í græjum til þess að svo geti orðið."

Þið kunnið vel við að hljóðrita utan hins hefðbundna hljóðvers?

Gunnar Örn: "Já. Við tökum með okkur ferðatölvu sem við höfum búið undir upptökurnar og draumurinn er að geta tekið upp nákvæmlega þar sem okkur lystir, hvort sem er úti á engi eða inni í lyftu."

Kristín: "Það heillar okkur ekkert sérstaklega að fara alltaf síðdegis inn í þröngt og loftlaust hljóðverið að loknum erfiðum vinnu- eða skóladegi."

Hvernig varð ykkur við að vera kosin bjartasta vonin í íslenskri tónlist?

Gunnar Örn: "Þetta var gaman fyrir mömmu og pabba og litlu krakkana í skólanum."

Kristín: "Þetta kom fjölskyldum okkar í skilning um hversu alvarlegum augum við lítum tónlistina. Það rann upp fyrir þeim að við værum að gera eitthvað af viti en ekki að dúlla okkur í hljómsveit einvörðungu til dægrastyttingar og gamans."

Gyða: "Fjölskyldur okkar skilja nú betur hvers vegna við tökum múm fram yfir allt annað, jafnvel skólann og vinnuna."

Höf.: Skarphéðinn Guðmundsson