Úr nýjasta myndbandi Britney Spears.
Úr nýjasta myndbandi Britney Spears.
HÚN Britney litla Spears veður í seðlum þótt ung sé að árum enda seldist fyrsta platan hennar grimmt um allan heim og nú er ný plata væntanleg þann 15. maí og sú ber heitið Oops!...I Did It Again.

HÚN Britney litla Spears veður í seðlum þótt ung sé að árum enda seldist fyrsta platan hennar grimmt um allan heim og nú er ný plata væntanleg þann 15. maí og sú ber heitið Oops!...I Did It Again.

En gróðinn af fyrstu plötunni nægði hinni 18 ára gömlu söngstjörnu til að kaupa sér risastórt hús í Cheltenham í Englandi. Húsið, sem er á fjórum hæðum er nokkurs konar lítil höll enda kostaði það tæpar 200 milljónir króna. Í húsinu eru níu svefnherbergi og í garðinum er lítið gestahús. Britney ætti því að hafa nóg pláss til að dansa um og æfa sig fyrir myndböndin en hún hefur þegar gert myndband við titillag nýju plötunnar. Britney þénaði rúman milljarð á síðasta ári og er nú farin að skrifa ævisögu sína, sem hún kallar Heart to Heart og aðstoðar móðir hennar, Lynne, hana við skrifin. Bókin kemur líklega út um svipað leyti og nýja platan svo að aðdáendur Britney Spears eiga sannarlega von á góðu.