FÍNA kryddið, Victoria Beckham, sem fékk misjafna dóma fyrir þátttöku sína í tískusýningu á tískuviku London í vetur var á dögunum kosin fremsta tískutákn dagsins í dag.

FÍNA kryddið, Victoria Beckham, sem fékk misjafna dóma fyrir þátttöku sína í tískusýningu á tískuviku London í vetur var á dögunum kosin fremsta tískutákn dagsins í dag.

Söngkonan úr Spice Girls þótti skara fram úr og tók stúlkur á borð við ofurfyrisætuna Kate Moss í nefið í könnuninni. Moss varð þó í öðru sæti og í því þriðja hafnaði Nicole Appleton úr hljómsveitinni All Saints.

Tágrannt tískutákn sem ungar stúlkur líta upp til

Það var sjónvarpsstöðin Rás 4 og tímaritið Company sem stóð fyrir könnuninni.

Victoria er þekkt fyrir að klæðast þröngum fatnaði er hún kemur fram með Kryddstúlkunum en stúlkan er tágrönn og þykir mörgum nóg um.

Þar sem unglingsstúlkur líta upp til hennar þykir mörgum hún vond fyrirmynd en sjálf harðneitar hún því að þjást af lystarstoli.