HINN árlegi kaffidagur Vopnfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldinn í Safnaðarheimili Bústaðakirkju sunnudaginn 7. maí og hefst kl. 15. Félagsmenn og gestir eru hjartanlega velkomnir. Sunnudaginn 18.

HINN árlegi kaffidagur Vopnfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldinn í Safnaðarheimili Bústaðakirkju sunnudaginn 7. maí og hefst kl. 15. Félagsmenn og gestir eru hjartanlega velkomnir.

Sunnudaginn 18. júní verður svo farin gróðursetningarferð í reit félagsins við Grunnuvötn í Heiðmörk. Ekkert hefur verið gróðursett í reitinn undanfarin tvö sumur og finnst félagsmönnum því tími til kominn að taka til við gróðursetningarverkefnið á ný.

Þar sem fólki hefur stundum reynst erfitt að finna gróðursetningarreitinn ætla félagsmenn að hittast fyrst og verða nánari upplýsingar um það gefnar á kaffideginum. Þá eru enn nokkrar vikur lausar í júní í sumarhúsi félagsins á Vopnafirði, segir í frétt frá félaginu.