ALEKSANDER Kwasniewski, forseti Póllands, kemur í tveggja daga opinbera heimsókn hingað til lands í næstu viku. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forseta Íslands er von á forsetanum, eiginkonu hans, Jolöntu, og fylgdarliði að morgni fimmtudagsins 11.

ALEKSANDER Kwasniewski, forseti Póllands, kemur í tveggja daga opinbera heimsókn hingað til lands í næstu viku.

Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forseta Íslands er von á forsetanum, eiginkonu hans, Jolöntu, og fylgdarliði að morgni fimmtudagsins 11. maí og dvelja þau hér fram að kvöldi föstudagsins 12. maí. Meðal þess sem er á dagskrá heimsóknar forsetans eru fundir með íslenskum ráðamönnum.