Ólafur Ragnar Grímsson forseti snæddi á fimmtudag á veitingastaðnum North Woods Inn í San Gabreil í Suður-Kaliforníu þar sem borinn er fram íslenskur fiskur. Forseta á hægri hönd situr Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra Íslands í Washington, og honum á v
Ólafur Ragnar Grímsson forseti snæddi á fimmtudag á veitingastaðnum North Woods Inn í San Gabreil í Suður-Kaliforníu þar sem borinn er fram íslenskur fiskur. Forseta á hægri hönd situr Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra Íslands í Washington, og honum á v
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Viðamikil Íslandskynning stendur nú yfir í Los Angeles í tengslum við þúsund ára afmæli landafunda Leifs heppna. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er af þessu tilefni í kvikmyndaborginni og ræddi við ráðamenn kvikmyndafyrirtækisins Warner Brothers um Íslendingasögurnar sem efnivið í kvikmyndir.

ÍSLENDINGAR í Los Angeles fagna þúsund ára afmæli landafunda Leifs heppna með því að kynna íslenskar kvikmyndir og tónlist fyrir heimamönnum. Guðjón Arngrímsson, framkvæmdastjóri landafundanefndar, segir hátíðahöldin breytileg eftir borgum og í kvikmyndaborginni hafi þótt eðlilegt að leggja áherslu á helstu áhugamál heimamanna. Ýmislegt annað er þó í boði, til dæmis matreiðir Siggi Hall íslenskan mat á Hollywood Roosevelt-hótelinu, íslensk fyrirtæki af ýmsum toga kynna starfsemi sína fyrir bandarískum, Hallveig Thorlacius sýnir brúðuleikrit í Barnasafninu í Los Angeles og tvær sýningar verða á leikritinu Ferðir Guðríðar, svo dæmi séu tekin.

Kvikmyndin Englar alheimsins var frumsýnd í hinu sögufræga Egyptian-kvikmyndahúsi við Hollywood Boulevard á fimmtudagskvöld. Um 500 manns voru viðstaddir frumsýninguna og fögnuðu bæði leikstjóranum Friðriki Þór Friðrikssyni og aðalleikurunum Ingvari Sigurðssyni og Baltasi Kormáki með lófataki. Frumsýning Engla alheimsins var liður í íslenskri kvikmyndahátíð í Egyptian-kvikmyndahúsinu. Hátíðin er styrkt af Kvikmyndasjóði Íslands og kvikmyndafyrirtækinu Palomar Pictures, sem er í eigu Sigurjóns Sighvatssonar, heiðurskonsúls Íslands í Los Angeles. Á hátíðinni eru kvikmyndir af ýmsum toga, Dansinn, Perlur og svín, Ungfrúin góða og húsið, Börn náttúrunnar, 101 Reykjavík, Fíaskó, Rokk í Reykjavík og Popp í Reykjavík.

Leitað til heimamanna

Guðjón Arngrímsson sagði að við skipulagningu landafundahátíða hefði landafundanefndin nýtt sér þekkingu Íslendinga sem búsettir væru í Bandaríkjunum. Það hefði ekki síst átt við í Los Angeles. Markmiðið væri að kynna Ísland fyrir almenningi, styrkja samfélög Íslendinga á hverjum stað og ná sambandi við stjórnvöld og fyrirtæki. "Í Los Angeles leituðum við til Sigurjóns Sighvatssonar og settum upp dagskrá sem tekur mið af skemmtanaiðnaðinum. Það gerðist hins vegar hér, líkt og raunin hefur verið annars staðar, að dagskráin hlóð fljótt utan á sig, þótt kvikmyndahátíðin sé enn kjarninn."

Guðjón sagði að það hefði gengið framar vonum að fá umfjöllun fjölmiðla í Los Angeles og þar hefðu góð sambönd Sigurjóns Sighvatssonar komið sér vel, auk þess sem landafundanefnd hefði ráðið starfsmann til að sjá um kynningarstörf. "Stórblaðið Los Angeles Times hefur fjórum sinnum fjallað um hátíðahöldin hér og útvarps- og sjónvarpsstöðvar hafa tekið viðtöl, m.a. við Jón Baldvin Hannibalsson sendiherra og Ólaf Ragnar Grímsson forseta. Þessi umfjöllun hefur vakið töluverða athygli. Við erum líka mjög ánægð með hve mikla og vandaða umfjöllun landafundaafmælið hefur fengið hjá stærstu fjölmiðlum Bandaríkjanna, til dæmis Time-tímaritinu, sem var með umfjöllun um víkinga á forsíðu blaðsins í vikunni."

Ísland í Today Show

Tímaritið Newsweek hefur einnig fjallað um ferðir norrænna manna til Ameríku til forna og fyrir skömmu var ítarleg umfjöllun í tímaritinu National Geographic. Í gærmorgun bættist enn við umfjöllunina, þegar Ísland var kynnt fyrir áhorfendum Today Show, morgunþætti NBC sjónvarpsstöðvarinnar. Þátturinn, sem er tveggja tíma langur, er sýndur um gjörvöll Bandaríkin. Fréttamaður NBC, Matt Lauer, hefur ferðast víða um heim þessa vikuna, en áhorfendur stöðvarinnar völdu áfangastaðina í sérstakri atkvæðagreiðslu, þar sem Ísland fékk 18% atkvæða. Förin hófst í Víetnam, þá lá leiðin til Hawaii, Spánar, Suður-Afríku og Ítalíu, en för hans lauk í Bláa lóninu á Íslandi í gær. Þátturinn var á mjög jákvæðum nótum, fréttamaðurinn lýsti fegurð landsins fjálglega, staðfesti sumar goðsagnir um landið og eyddi öðrum. Meðal þeirra sem hann ræddi við voru Svanhildur Konráðsdóttir, sem fræddi hann um ýmislegt sem snýr að menningarlífi landans, og Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur sem útskýrði undur jarðhitans. Einar Bollason skrapp með honum í útreiðartúr og að sjálfsögðu fékk Keiko hluta athyglinnar.

NBC býður áhorfendum sínum að kaupa myndband með ferðalagi fréttamannsins þessa vikuna, svo Íslandsfróðleikurinn lifir áfram.

Íslendingasögur til Warner Brothers

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, kom til Los Angeles á miðvikudag í tengslum við Íslandskynninguna. Á miðvikudag hitti hann borgarstjóra Los Angeles, Richard J. Riordan, en á fimmtudag heimsótti hann ritstjórnarskrifstofur Los Angeles Times og fundaði með yfirmönnun Warner Brothers, þar á meðal Ólafi Jóhanni Ólafssynií kvikmyndaveri fyrirtækisins.

Ólafur Ragnar sagði að sér þætti landafundanefndin hafa samið góða dagskrá fyrir Los Angeles. "Mér finnst mjög vel til fallið að kynna íslenskar kvikmyndir í þessari borg og ég fann í viðræðum mínum við yfirmenn Warner Brothers að þeir eru mun opnari en áður fyrir að leita að efnivið og samstarfsaðilum erlendis. Áður var bandaríski kvikmyndaiðnaðurinn tiltölulega einangraður en núna leita þeir að rithöfundum, efniviði, skáldsögum fornum og nýjum og kvikmyndagerðarmönnum um allan heim. Ég átti ágætis viðræður við þá um Íslendingasögurnar sem hugsanlegan efnivið til kvikmyndagerðar og niðurstaðan varð sú að ég mun senda þeim heildarútgáfuna af Íslendingasögunum á ensku og þeir munu skoða þann efnivið mjög rækilega."

Forsetinn sagði að sér hefði þótt mjög ánægjulegt að sjá með eigin augum hvað þekktustu fulltrúar Íslands í kvikmyndaborginni, Ólafur Jóhann og Sigurjón Sighvatsson,
nytu mikils trausts og hve öflugir þeir væru innan bandarískrar kvikmyndagerðar.

Hann sagði að í viðræðum sínum við borgarstjórann og yfirmenn á Los Angeles Times hefði komið skýrt fram að þeim þætti Ísland forvitnilegt fyrir þá hátækni sem þar hefði sprottið fram á síðustu árum, hvort sem það væri á sviði erfðatækni, rannsókna á notkun vetnis eða beitingu upplýsingatækni. "Menn velta því mjög fyrir sér hvernig þetta sé hægt í svona litlu samfélagi. Ég benti þeim á að sköpunargáfan hefði fylgt okkur alla tíð og sá kraftur, sem áður birtist í sögum okkar, birtist nú í dirfsku til að gera eitthvað nýtt. Þar að auki er risið nýtt hagkerfi upplýsingatækni, þar sem engu máli skiptir hvar fyrirtæki eru staðsett."

Samningar og tónlist

Í gærmorgun, föstudag, buðu íslensk fyrirtæki til móttöku á Hollywood Roosevelt-hótelinu, þar sem þau kynntu starfsemi sína. Stórsamningur X-18 um skósölu til Bandaríkjanna var undirritaður þar um hádegið og þar var einnig haldin tískusýning þar sem skórnir voru sýndir.

Í gærkvöldi voru tónleikar með íslensku hljómsveitunum Maus, Slowblow, Quarashi og DJ Herb Legowitz í El Rey-leikhúsinu.