Aldís Yngvadóttir
Aldís Yngvadóttir
Alþjóðahreyfing Lions hefur lagt á það áherslu, segir Aldís Yngvadóttir, að Lionsfélagar um heim allan leggi rækt við æskuna í sínu heimalandi.

ENN á ný er runninn upp fyrsti laugardagur í maí. Í huga Lionsfélaga um land allt merkir þessi dagur tvennt, þ.e. vímuvarnir og starf með ungu fólki. Það sem sameinar þetta tvennt er Lions-Quest lífsleikninámsefnið Að ná tökum á tilverunni og Í sátt og samlyndi, en útgáfa Lions-Quest námsefnisins hefur um árabil verið samstarfsverkefni Lionshreyfingarinnar og Námsgagnastofnunar.

Tilgangurinn tvíþættur

Vímuvarnadagurinn er einkum haldinn í tvennum tilgangi. Í fyrsta lagi til að minna á nauðsyn öflugra tóbaks- áfengis- og fíknivarna meðal æskunnar og hvetja til þess að þar leggist allir á eitt. Sérfróðir í þessum efnum leggja einmitt á það höfuðáherslu að það þurfi að vinna að þessum málum á sem víðustum grundvelli og á ýmsum vettvangi innan hvers þjóðfélags. Í annan stað að styðja við bakið á notkun og útbreiðslu Lions-Quest námsefnisins. Dagurinn er helgaður því að gera eitthvað uppbyggilegt með unga fólkinu í heimabyggðinni og að fjölskyldan sé saman að gera eitthvað skemmtilegt. Að þessu vinna Lionsfélagar í grasrótarstarfi um land allt.

Túlípanamerkið tákn dagsins

Túlípanamerki Lions táknar þær andstæður sem eru með heilbrigðum einstaklingi í blóma lífsins og þeim sem lendir á glapstigu vegna áfengis- eða fíkniefnaneyslu. Engum dylst að rauður og fallegur túlípani táknar hann fyrrnefnda og svartur, visinn og boginn túlípani er tákngervingur þess síðarnefnda.

Lions-Quest og lífsleikni

Gefin hefur verið út ný aðalnámskrá fyrir grunnskóla (1999). Í henni er kveðið á um kennslu nýrrar námsgreinar sem hlotið hefur heitið lífsleikni.

Lions-Quest var fyrst gefið út árið 1990 og hefur allar götur síðan gengið undir heitinu Lífsleikni. Lionsfólki þykir því ekki oftúlkað að álykta sem svo að þeirra framlag og frumkvöðulsstarf hafi haft jákvæð áhrif á íslenska skólasögu.

Lions-Quest - að ná tökum á tilverunni

Þetta lífsleikninámsefni er ætlað 12 til 14 ára nemendum. Þar eru kenndir ýmsir mikilvægir færniþættir lífsleikninnar sem koma að gagni í daglegu lífi. Nefna má þætti eins og samskipti og samvinnu, tjáskipti, að skilja og ráða við tilfinningar, að leysa ágreining, að leggja öðrum lið í sjálfboðavinnu, að leysa mál, gagnrýna hugsun og að setja sér markmið.

Í námsefninu er sérstök áhersla á áfengis-, tóbaks- og aðrar fíkniefnavarnir þar sem m.a. er frætt um áhrif og skaðsemi efnanna. Þeirri þekkingu er ætlað að hjálpa unga fólkinu að hugsa sjálfstætt og á gagnrýninn hátt og taka ábyrga afstöðu og ákvörðun um að lifa heilbrigðu lífi.

Lions-Quest - í sátt og samlyndi

Hér er um að ræða lífsleikninámsefni sem kalla mætti ofbeldisvarnir. Það er ætlað 14-15 ára nemendum. Í efninu er kennd samskiptafærni og áhersla lögð á að kenna nemendum að vinna úr reiði og ágreiningi án þess að beita ofbeldi.

Sérstakar kennslustundir eru viðvíkjandi því hvernig koma má í veg fyrir yfirgang og einelti.

Lions með ungu fólki

Alþjóðahreyfing Lions hefur lagt á það áherslu að Lionsfélagar um heim allan leggi rækt við æskuna í sínu heimalandi undir kjörorðinu "Breytum morgundeginum í dag." Lionshreyfingin á Íslandi lætur ekki sitt eftir liggja á þeim vettvangi. Vímuvarnadagurinn og Lions-Quest eru til marks um það.

Höfundur er verkefnisstjóri Lions-Quest og vímuvarnastjóri Lions.

Höf.: Aldís Yngvadóttir