HELGA Magnúsdóttir, sem nýlega var kosin í mótanefnd evrópska handknattleikssambandsins, fer í sitt fyrsta verkefni nú í vikunni. Helga heldur til Rúmeníu á morgun en þar fer fram úrslitakeppni Evrópumóts kvennalandsliða í desember.
HELGA Magnúsdóttir, sem nýlega var kosin í mótanefnd evrópska handknattleikssambandsins, fer í sitt fyrsta verkefni nú í vikunni. Helga heldur til Rúmeníu á morgun en þar fer fram úrslitakeppni Evrópumóts kvennalandsliða í desember. Helga mun gera lokaúttekt á keppnishaldi Rúmena og hún verður viðstödd þegar dregið verður í riðla fyrir Evrópumótið og í forkeppni heimsmeistaramótsins.