Morad ásamt lögmanni sínum.
Morad ásamt lögmanni sínum.
BRASILÍSKA fyrirsætan Luciana Morad sést hér koma til fjölskylduréttarins í New York í gær en hún er nú að fara fram á aukið meðlag frá barnsföður sínum, rokkaranum Mick Jagger.

BRASILÍSKA fyrirsætan Luciana Morad sést hér koma til fjölskylduréttarins í New York í gær en hún er nú að fara fram á aukið meðlag frá barnsföður sínum, rokkaranum Mick Jagger.

Þau eiga saman soninn Lucas og áður hafði Jagger samþykkt að borga rúmlega 700 þúsund krónur í framfærslukostnað.

En Morad er ekki sátt við það enda er Jagger einn ríkasti maður Bretlands.