Tommy Lee ásamt Pamelu Anderson Lee.
Tommy Lee ásamt Pamelu Anderson Lee.
ROKKARINN Tommy Lee gæti átt fangelsisvist yfir höfði sér fyrir að brjóta skilorð sem hann er á fyrir að beita eiginkonu sína, Pamelu Anderson, ofbeldi. Brotið felst í að neyta áfengis en samkvæmt skilorðsbundnum dómi var það ekki leyfilegt.

ROKKARINN Tommy Lee gæti átt fangelsisvist yfir höfði sér fyrir að brjóta skilorð sem hann er á fyrir að beita eiginkonu sína, Pamelu Anderson, ofbeldi. Brotið felst í að neyta áfengis en samkvæmt skilorðsbundnum dómi var það ekki leyfilegt. Dómarinn

Lawrence Mira hefur skipað Lee að mæta aftur fyrir rétt í lok maí eftir að sést hafði til hans neyta áfengis. Talsmaður rokkarans segir að ekki verði reynt að þræta fyrir brotið því vitni hefði verið að verknaðinum. Ekki náðist í lögmann rokkarans né hann sjálfan til að fá fréttina staðfesta en Lee var síðast handtekinn árið 1998 eftir að eiginkona hans hringdi á lögreglu og sagði að hann hefði sparkað í sig og barið sig. Hún sótti um skilnað stuttu síðar en þau tóku saman aftur er Tommy snéri nýr og betri maður úr fangelsi. En fréttir herma að enn og aftur hafi slitnað upp úr sambandi þeirra og þess vegna hafi Tommy karlinn kannski hallað sér að flöskunni á nýjan leik.