LEIKARARNIR Billy Bob Thornton og Angelina Jolie gengu í það heilaga í Las Vegas um helgina. Fyrir um tveimur vikum voru uppi sögusagnir um að parið hefði gengið í hnapphelduna, en þær munu hafa verið stórlega ýktar.
Athöfnin fór fram í lítilli kapellu í Las Vegas og var afar látlaus. Brúðhjónin klæddust gallabuxum og voru aðeins örfáir gestir viðstaddir.
20 ára aldursmunur er á nýbökuðu hjónunum. Thornton, sem er 44 ára, hefur verið kvæntur fjórum sinnum áður, en Jolie, sem er 24 ára, einu sinni áður.
Spekingar í Hollywood hafa sínar efasemdir um hversu vel og lengi hjónaband þetta eigi eftir að endast en benda þó á að oft eru það ólíklegustu pörin sem koma mest á óvart í þeim efnum. Því gæti þetta hjónaband Thornton og Jolie, sem bæði þykja frekar laus í rásinni, vel blessast þrátt fyrir allt.