Þegar sól hækkar á lofti fara mótorhjólin að sjást meira á götum bæja og borga og á þjóðvegum landsins. Kristinn M.
Þegar sól hækkar á lofti fara mótorhjólin að sjást meira á götum bæja og borga og á þjóðvegum landsins.
Kristinn M. Símonarson í Vík í Mýrdal var að liðka fjórhjólið sitt í sandgryfjunni austan við Víkurþorpið þegar fréttaritari Morgunblaðsins átti þar leið hjá og tók þessa mynd.
Kristinn segir að það sé hans helsta áhugamál að halda fjórhjólinu við og leika sér á því í nágrenni Víkur.
Fagradal. Morgunblaðið.
Höf.: Fagradal. Morgunblaðið