LGeorge Lucas, höfundur Star Wars-kvikmyndaseríunnar, hefur látið undan aðdáendum myndanna og ákveðið að gefa fyrsta hlutann út á DVD-formi.
LGeorge Lucas, höfundur Star Wars-kvikmyndaseríunnar, hefur látið undan aðdáendum myndanna og ákveðið að gefa fyrsta hlutann út á DVD-formi. Hann þráaðist lengi við og taldi ekki tímabært að gefa neitt út á DVD fyrr en hann hefði lokið við næstu tvær myndir, en þá yrðu myndirnar samtals sex. Þeir sem eiga viðskipti við þrjár stærstu DVD-síðurnar á Netinu mótmæltu hástöfum og hrintu af stað herferð til þess að fá sínu framgengt. Yfir 30 þúsund undirskriftir bárust og yfir 100 síður tóku þátt í átaki um að fá myndirnar á DVD-formi. Herferðin bar loks árangur er Lucas tilkynnti óvænt á útvarpsstöðinni KROQ í Los Angeles að hann hefði látið undan og að hann væri að láta vinna að DVD-útgáfu af Star Wars: Episode I.