Brids fyrir óvana keppnisspilara og byrjendur Bridskvöld fyrir byrjendur og óvana keppnisspilara verða haldin alla mánudaga í maí undir stjórn Hjálmtýs Baldurssonar, kennara í Bridsskólanum. Spilamennska hefst kl. 20.00.

Brids fyrir óvana keppnisspilara og byrjendur

Bridskvöld fyrir byrjendur og óvana keppnisspilara verða haldin alla mánudaga í maí undir stjórn Hjálmtýs Baldurssonar, kennara í Bridsskólanum. Spilamennska hefst kl. 20.00. Spilaður er léttur tvímenningur, sambland af keppni og kennslu.

Allir áhugasamir, nemendur Bridsskólans sem aðrir nýliðar, eru hjartanlega velkomir. Þeir sem eru stakir geta mætt óhræddir því pör verða mynduð á staðnum.