FJÖLMENNI var á kojukaffi ABC hjálparstarfs 1. maí, en kaffisalan var haldin til styrktar kojukaupum á Heimili litlu ljósanna á Indlandi. Fór fjöldi gesta langt fram úr vonum og söfnuðust rúmar 500 þúsund krónur.

FJÖLMENNI var á kojukaffi ABC hjálparstarfs 1. maí, en kaffisalan var haldin til styrktar kojukaupum á Heimili litlu ljósanna á Indlandi.

Fór fjöldi gesta langt fram úr vonum og söfnuðust rúmar 500 þúsund krónur. Nægja þeir fjármunir til að kaupa 100 kojur, þ.e. rúm fyrir 200 börn ásamt dýnum og koddum. Margir gáfu fjármuni til að kaupa koju, en hver koja með dýnum og koddum fyrir tvö börn kostar 5.200 kr.

ABC hjálparstarf vill koma á framfæri þakklæti til allra sem komu þennan dag og létu fé af hendi rakna. Jafnframt er beðist velvirðingar á því að meðlæti þraut um tíma vegna fjölda gesta. Hægt er að leggja fé til kojukaupa á Heimili litlu ljósanna á reikning 537-26-151 í Íslandsbanka.