HAFNARGÖNGUHÓPURINN stendur fyrir gönguferð með strönd Seltjarnarness í kvöld, miðvikudagskvöld. Farið er frá Hafnarhúsinu, Miðbakkamegin, kl. 20 og með SVR, leið 3, út að Bakkavör á Seltjarnarnesi. Þaðan gengið kl. 20.

HAFNARGÖNGUHÓPURINN stendur fyrir gönguferð með strönd Seltjarnarness í kvöld, miðvikudagskvöld.

Farið er frá Hafnarhúsinu, Miðbakkamegin, kl. 20 og með SVR, leið 3, út að Bakkavör á Seltjarnarnesi. Þaðan gengið kl. 20.20 og fylgt göngustígnum eftir Bakkagranda og fyrir Suðurnes. Síðan með strönd Seltjarnar, Norðurvíkur og Eiðisvíkur, niður að höfn. Gönguferðinni lýkur við Hafnarhúsið. Hægt verður að stytta gönguna með því að fara í SVR á leiðinni til baka, segir í fréttatilkynningu.