Sæmi sirkusslanga Þau mistök urðu við birtingu umsagnar um barnaóperuna Sæma sirkusslöngu í blaðinu í gær að nöfn leikstjóranna féllu niður en þeir eru Jóhann Smári Sævarsson og Jón Páll Eyjólfsson. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Fastráðinn til 31.

Sæmi sirkusslanga

Þau mistök urðu við birtingu umsagnar um barnaóperuna Sæma sirkusslöngu í blaðinu í gær að nöfn leikstjóranna féllu niður en þeir eru Jóhann Smári Sævarsson og Jón Páll Eyjólfsson. Beðist er velvirðingar á mistökunum.

Fastráðinn til 31. október 1998

Í grein minni í Morgunblaðinu í gær birtist rangt ártal vegna misskilnings í upplýsingum frá launadeild Þjóðleikhússins. Þar átti að standa að fastráðningartíma Baltasars Kormáks leikara hefði lokið við Þjóðleikhúsið 31. október 1998 en ekki 1999.

Hávar Sigurjónsson.

Nafn ljósmyndarans vantaði

Þau mistök urðu við birtingu ljósmyndar, sem fylgdi grein Guðrúnar Emilsdóttur um Sólvangssvæðið og birtist í blaðinu sl. laugardag, að það láðist að geta þess hver tók myndina af Sólvangi. Ljósmyndarinn er Gísli Jónsson prófessor, en hann lést á síðasta ári.

Morgunblaðið biðst velvirðingar á mistökunum.