Veðrið hefur verið með eindæmum milt undanfarna daga og hafa margir nýtt sér það óspart til útivistar, bæði menn og málleysingjar. Á Seltjarnarnesi í vikunni mátti m.a. sjá að maður og hundur geta oft átt náið samfélag og eru iðulega bestu vinir.
Veðrið hefur verið með eindæmum milt undanfarna daga og hafa margir nýtt sér það óspart til útivistar, bæði menn og málleysingjar. Á Seltjarnarnesi í vikunni mátti m.a. sjá að maður og hundur geta oft átt náið samfélag og eru iðulega bestu vinir. Þar lék Jóhanna við tíkina sína og lét hana gera hinar ýmsu hundakúnstir eins og sjá má á þessari mynd sem ljósmyndari Morgunblaðsins tók.