NÝSTOFNAÐ tríó sem kallar sig Vox heldur tónleika á Mótel Venus í Borgarnesi fimmtudagskvöldið 28. september frá kl. 21.30. Í fararbroddi tríósins er Ruth Reginalds en með henni spila þeir Eyjólfur Kristjánsson og Ingi Gunnar Jóhannsson.
NÝSTOFNAÐ tríó sem kallar sig Vox heldur tónleika á Mótel Venus í Borgarnesi fimmtudagskvöldið 28. september frá kl. 21.30.
Í fararbroddi tríósins er Ruth Reginalds en með henni spila þeir Eyjólfur Kristjánsson og Ingi Gunnar Jóhannsson. Vox flytur aðallega notalegar ballöður úr ýmsum áttum, íslenskar jafnt sem erlendar, segir í fréttatilkynningu.