Ólafur og Bjarki festa niður gangbrautarstaur í Eyjafjarðarsveit.
Ólafur og Bjarki festa niður gangbrautarstaur í Eyjafjarðarsveit.
FÉLAGARNIR Ólafur Kjartansson og Bjarki Árnason voru í óðaönn að reisa upp gangbrautarstaur við veginn milli leik- og grunnskólans á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit.
FÉLAGARNIR Ólafur Kjartansson og Bjarki Árnason voru í óðaönn að reisa upp gangbrautarstaur við veginn milli leik- og grunnskólans á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit. Staurinn fauk um koll og lagðist yfir veginn í miklu roki sem gekk yfir í Eyjafirði síðasta vor. Nú þegar skólastarf er hafið og börn á ferð yfir veginn er því brýnt að reisa staurinn en þeir Ólafur og Bjarki unnu við það að festa hann kyrfilega niður svo óhapp líkt og í vor hendi síður aftur.