TVEIR fólksbílar skullu saman á Suðurlandsvegi skammt norðan við Ölfusárbrú um hádegisbil í gær. Öðrum bílnum var ekið yfir á rangan vegarhelming með þeim afleiðingum að hann lenti framan á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt.
TVEIR fólksbílar skullu saman á Suðurlandsvegi skammt norðan við Ölfusárbrú um hádegisbil í gær. Öðrum bílnum var ekið yfir á rangan vegarhelming með þeim afleiðingum að hann lenti framan á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Að sögn lögreglu á Selfossi kvartaði ökumaður annars bílsins undan bakmeiðslum og var hann fluttur til læknisskoðunar.