Enginn grætur Íslending einan sér og dáinn. Þegar allt er komið í kring, kyssir torfa náinn. Mér er þetta mátulegt, mátti vel til haga, hefði ég betur hana þekkt, sem harma ég alla daga. Lifðu sæl við glaum og glys, gangi þér allt í haginn.
Enginn grætur Íslending
einan sér og dáinn.
Þegar allt er komið í kring,
kyssir torfa náinn.
Mér er þetta mátulegt,
mátti vel til haga,
hefði ég betur hana þekkt,
sem harma ég alla daga.
Lifðu sæl við glaum og glys,
gangi þér allt í haginn.
Í öngum mínum erlendis
yrki ég skemmsta daginn.
- - -
Jónas Hallgrímsson.