KYNNING verður í Kompaníinu, Hafnarstræti 73 á Akureyri, á föstudag, 29. september, frá kl. 14 til 16.30 á því sem í boði er fyrir ungt fólk í bænum. Kompaníið er upplýsinga-, þjónustu- og menningarmiðstöð ungs fólks á aldrinum 16 til 25 ára.

Þeir sem kynna eru ýmis félög, klúbbar og fyrirtæki á Akureyri, en markmiðið er að kynna fyrir ungu fólki þá möguleika sem leynast í skólabænum Akureyri hvað varðar afþreyingu og þjónustu við aldurshópinn. Ungt fólk sem nýflutt er í bæinn er sérstaklega hvatt til að mæta. Boðið verður upp á Axelsskúffuköku, kakó, kók og prins póló.