RONALD Eradze frá Georgíu mun standa í marki handknattleiksliðs Vals í vetur en hann kom til Hlíðarendaliðsins í síðustu viku.
RONALD Eradze frá Georgíu mun standa í marki handknattleiksliðs Vals í vetur en hann kom til Hlíðarendaliðsins í síðustu viku. Til stóð að Egidius Petkevicius, sem lék með FH-ingum á síðasta tímabili, yrði í marki Valsmanna í vetur en hann hefur átt við erfið meiðsl að stríða í baki og er óttast að hann sé með brjósklos.