GUÐRÚN Arnardóttir keppir í úrslitum 400 metra grindahlaupsins á Ólympíuleikunum í Sydney klukkan 9:55 árdegis. Guðrún var áttunda stúlkan inn í úrslitahlaupið og önnur tveggja sem komust inn á tíma. Tími hennar í milliriðlinum var sjötti besti tíminn.
GUÐRÚN Arnardóttir keppir í úrslitum 400 metra grindahlaupsins á Ólympíuleikunum í Sydney klukkan 9:55 árdegis. Guðrún var áttunda stúlkan inn í úrslitahlaupið og önnur tveggja sem komust inn á tíma. Tími hennar í milliriðlinum var sjötti besti tíminn. Guðrún hleypur á annarri braut í dag og verður hlaupið sýnt í beinni útsendingu sjónvarpsins.