RÚNAR Alexandersson fimleikamaður eignaðist son á sunnudaginn en hann hefur beðið spenntur síðstu viku eftir fréttinni um fæðingu frumburðarins sem væntanlegur var á meðan Ólympíuleikarnir standa yfir.
RÚNAR Alexandersson fimleikamaður eignaðist son á sunnudaginn en hann hefur beðið spenntur síðstu viku eftir fréttinni um fæðingu frumburðarins sem væntanlegur var á meðan Ólympíuleikarnir standa yfir. Þetta er fyrsta barn Rúnars en hann er í sambúð með sænskri stúlku, Helenu. Móður og barni heilsast vel og fór Rúnar í dag til Svíþjóðar, þar sem hann býr, til móts við mæðginin.