DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra heldur í opinbera heimsókn til Kanada 16. október nk. Heimsóknin hefst í Minneapolis en þaðan heldur forsætisráðherra til Winnipeg þar sem hann verður m.a.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra heldur í opinbera heimsókn til Kanada 16. október nk. Heimsóknin hefst í Minneapolis en þaðan heldur forsætisráðherra til Winnipeg þar sem hann verður m.a. viðstaddur opnun íslenska bókasafnsins í háskólanum í Winnipeg en hann mun einnig taka við heiðursdoktorsnafnbót við skólann. Þá mun forsætisráðherra taka þátt í hátíðarhöldum í Gimli til að minnast fyrstu íslensku landnemanna sem þangað komu fyrir 125 árum.