Ísafirði- Meðal gesta á Atvinnuvegasýningu Vestfjarða sem haldin var á Ísafirði um síðustu helgi voru þessir þrír heiðursmenn en málefni þeim viðkomandi hafa verið nokkuð í fréttum að undanförnu.
Ísafirði- Meðal gesta á Atvinnuvegasýningu Vestfjarða sem haldin var á Ísafirði um síðustu helgi voru þessir þrír heiðursmenn en málefni þeim viðkomandi hafa verið nokkuð í fréttum að undanförnu. Tveir þeirra eru þingmenn Bolvíkinga/Vestfirðinga og jafnframt stjórnarmenn í Byggðastofnun, þeir Einar K. Guðfinnsson og Kristinn H. Gunnarsson, stjórnarformaður Byggðastofnunar.

Á milli þeirra er sparisjóðsstjórinn í Bolungarvík, Ásgeir Sólbergsson.

Ekki er vitað hvort innheimtu fyrir Byggðastofnun og samninga þar að lútandi við Sparisjóð Bolungarvíkur hefur borið á góma við þetta tækifæri. Ef til vill hafa þeir verið að biðja Gallup að athuga nánar viðhorf almennings. En hvað sem því líður virðast þeir ókvíðnir á svipinn.