Feðgarnir Jón Ragnarsson og Rúnar hafa náð mjög góðum árangri í sumar _ verið óstöðvandi.
Feðgarnir Jón Ragnarsson og Rúnar hafa náð mjög góðum árangri í sumar _ verið óstöðvandi.
EFTIR að Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í rallakstri sl.

EFTIR að Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í rallakstri sl. fimmtudag eins og sagt var frá í Morgunblaðinu á föstudaginn, hafa þeir feðgar hampað Íslandsmeistaratitlinum tíu sinnum saman, þrisvar sinnum þar sem Jón ók og Rúnar var sem aðstoðarmaður og nú sjö sinnum eftir að þeir víxluðu sætum. Þeir eru tvímælalaust sigursælustu ökumenn Íslands í ralli fyrr og síðar og eru þeir engan veginn á leiðinni að hætta. Jón Ragnarsson ók áður með bróður sínum, Ómari Ragnarssyni, þeim eina sanna, en Rúnar byrjaði að keppa með föður sínum einungis fimmtán ára gamall. Þeir hafa gengið í gegnum ýmislegt á þessum tíma en þeir eru nokkuð sammála um að þessi titill nú standi nokkuð upp úr þar sem þeir hafa fengið mjög mikla baráttu í sumar en enda þó tímabilið með fullt hús stiga sem verður að teljast einstakur árangur.

Alþjóðarallið stendur alltaf upp úr, það er ákveðinn klassi yfir því og okkur gekk rosalega vel í því ralli. Það sem kom okkur mest á óvart var rallið á Sauðárkróki, við lentum þar í gríðarlegri keppni og allt í einu eftir venjulega keyrslu, án þess að sprengja eða nokkuð sérstakt gerðist, erum við komnir undir 15 sekúndur - það er eitthvað sem við erum ekki vanir. Við ókum að vísu lítillega útaf en við vorum samt komnir í stöðu sem við þekktum ekki nema þegar eitthvað bilar hjá manni. Þetta var nýtt fyrir okkur að vera komnir í mikla baráttu og vera undir í henni," sagði Jón þegar Morgunblaðið náði tali af þeim feðgum eftir að þeir höfðu jafnað sig eftir rallið og voru þeir á einu máli um það að þetta sumar einkenndist af sekúndu slag frá upphafi fyrstu sérleiðar keppnistímabilsins. "Ef við tökum samt Hólmavík sem dæmi þá tökum við þrettán sekúndur af þeim Hirti og Ísak yfir Tröllatunguheiðina vestur þrátt fyrir að hafa verið í sekúndu slag fram að því sem sýnir að við höfum enn eitthvað í pokahorninu þegar á þarf að halda, þannig virkar þetta á mig. Sama má segja um Gunnarsholt sem búið er að keyra í 25 ár, að við bætum þar tímann úr 9 mínútum og 44 sekúndum í 9 mínútur og 28 sekúndur sem er um ein sekúnda á hvern kílómetra á leið sem við erum búnir að keyra öll þessi ár sem sýnir að þarna var aukakraftur til þegar á þurfti að halda," sagði Jón.

Þeir fundu fyrir því að þegar á reyndi áttu þeir alltaf eitthvað inni en í sumar gengu menn ekkert inn í visst sæti því það var barátta um fyrsta til þriðja sæti allan tímann og það mátti ekkert út af bera til að Baldur eða Hjörtur færu framúr þeim. "Báðir þessir ökumenn, Baldur og Ísak, munu þróast og ég hef trú á því að Baldri eigi eftir að fleygja mikið fram, kannski meira en Hirti þar sem hann hefur keppt styttra - Hjörtur er orðinn gríðarlega góður nú þegar. Stefnan verður svipuð næsta sumar, halda þessu striki eins og það er núna og skoða síðan hvað gerist eftir næsta sumar. Menn eru jú eitthvað að spá í að endurnýja bíla en við sjáum bara hvað það gefur mönnum, sagði Jón en þeir munu án efa fylgjast vel með hvað ökumenn ætla að gera fyrir næsta sumar.

Mikil breyting á fáum árum

Rallið hefur þróast mikið á síðustu árum. Ekki er langt síðan að þeir feðgar óku á Mazda 323 og þóttu þeir tímar hreint ótrúlegir sem þeir náðu á þeim bíl en sá bíll væri ekki nálægt toppbaráttunni í dag. "Vegir hafa bæði batnað og versnað, bílarnir þróast alveg gríðarlega og ekki síður sú þróun að menn eru farnir að vinna þetta öðruvísi, menn reyna miklu meira að ná öllu út úr bílunum núna en áður og því hefur hraðinn stóraukist. Við erum að sjá núna að við vorum að ná ótrúlegum tímum á Mözdunni miðað við hvað sá bíll var mikill eftirbátur þeirra bíla sem eru komnir í dag, að maður skyldi ná að berjast við Metro á sínum tíma er alveg hreint ótrúlegt, það er þvílíkur munur á þeim bílum. Við vonum að þróunin eigi eftir að vera sú að það komi fleiri öflugir bílar til landsins eins og verið hefur undanfarin ár, þetta er orðinn mikill og öflugur floti," sagði Rúnar.

Sú regla er í gildi að bílarnir mega ekki vera kraftmeiri en 300 hestöfl og því mætti ætla að þróunin verði ekki mikil í að auka kraftinn í framtíðinni þar sem flestir þessara bíla sem eru að keppa á toppnum eru 300+ hestöfl. "Eina stökkið sem gæti orðið fram á við að mínu mati er að menn skoði sjálfa sig betur heldur en bílana. Það þýðir ekkert að vera með góðan bíl og vera svo ekkert í standi sjálfur til að keyra bílinn. Ef það verður einhver hraðaaukning og þróun þá verður það fyrst og fremst það sem ökumaðurinn getur þjálfað sig í að verða betri. Bílarnir verða ekki mikið betri sem koma, margir halda að bíllinn sé eina lausnin en það er langt því frá. Bíllinn þarf að vera góður en ökumaðurinn verður að geta stjórnað bílnum. Þeir strákar sem eru að koma upp sem leggja sig mest fram við að þjálfa sjálfa sig, þeim á eftir að fleyta fram," sagði Jón.

Þarf að finna nýja vegi

"Nú þarf að fara að leita að nýjum leiðum til að keppa á. Það er til hellingur af góðum leiðum, t.d. uppsveitir Árnessýslu og svæðið í kringum Gunnarsholt, það þarf að auka fjölbreytnina í rallinu. Því sem betur fer eru sumar leiðirnar þannig að þær eru lagaðar en þeim er ekki breytt í landslaginu en það var gert á Þverárfjallinu, hún fer bara. Þverárfjallið var æðisgengin leið og það er mikill missir að geta ekki rallað hana framar," sagði Rúnar þegar hann var spurður um framtíð þessarar íþróttar.

"Það sem hefur gert þetta sport veglegt og öflugt síðustu árin eru bílarnir sem eru komnir, þetta er orðinn mikill slagur á milli bílategunda og það er orðið svakalegt fyrirtæki í kringum hvern bíl. Rall er á mikilli uppleið hér á landi eftir að hafa verið í nokkurri lægð þar til Páll Halldór og Jóhannes koma með Mitsubishi Lancer hingað til lands 1997. Þá förum við að vakna til lífsins og fleiri ökumenn ásamt því að bifreiðaumboðin hafa komið miklu meira inn í þetta heldur en áður fyrr. Bifreiðaumboðið Ingvar Helgason hefur komið mikið inn í þetta með okkur ásamt því að Olís hefur stutt vel við okkur undanfarin ár, þetta væri ekki hægt neitt öðruvísi," sagði Jón. En að taka þátt í ralli þarfnast meira en bíls og tveggja ökumanna þar sem mikið gengur á milli sérleiða við að halda bílnum í sem besta lagi. "Við erum með alveg einstakt lið núna, þeir eiga miklar þakkir skilið fyrir það sem þeir hafa gert. Halldór Jóhannesson hefur stjórnað þessum mannskap frá því að Rúnar byrjaði að keyra með mér og vinna þeir þetta allt í sjálfboðavinnu. Allur þessi hópur eltir mann um allt land að minnsta kosti sex helgar á hverju sumri og eiga þeir því stóran þátt í þessari sigurgöngu okkar undanfarin ár," sagði Jón sem vill benda á að hægt sé að gera mun meira fyrir þessa íþrótt en gert er í dag, mikill áhugi sé fyrir hendi en það vantar nauðsynlega fólk til að vinna í kringum keppnishaldið. Rallið er íþrótt sem hefur náð gríðarlegum vinsældum um allan heim og Ísland er engin undantekning.

Gunnlaugur Einar Briem skrifar