Á ÁRSÞINGI Handknattleikssambands Íslands í vor var ákveðið að fella út jafntefli í deildarkeppni karla og kvenna. Endi leikur með jafntefli skal framlengja leikinn í 2x5 mínútur.
Á ÁRSÞINGI Handknattleikssambands Íslands í vor var ákveðið að fella út jafntefli í deildarkeppni karla og kvenna. Endi leikur með jafntefli skal framlengja leikinn í 2x5 mínútur. Verði enn jafnt skal framlengja aftur í 2x5 mínútur og fáist ekki úrslit þá verður svokallað gullmark látið ráða úrslitum.