Ívar Sigurjónsson, markaðsstjóri Kringlunnar, Hólmfríður Svavarsdóttir vinningshafi, Einar Þór Karlsson, markaðsfulltrúi  Úrvals-Útsýnar.
Ívar Sigurjónsson, markaðsstjóri Kringlunnar, Hólmfríður Svavarsdóttir vinningshafi, Einar Þór Karlsson, markaðsfulltrúi Úrvals-Útsýnar.
VERÐLAUN í dekurleik Kringlunnar og Úrvals-Útsýnar voru afhent 25. september. Vinningshafinn var Hólmfríður Svavarsdóttir og hlaut hún tveggja vikna ferð til Mexíkó fyrir tvo að andvirði um 200.000 kr. frá Úrval-Útsýn.
VERÐLAUN í dekurleik Kringlunnar og Úrvals-Útsýnar voru afhent 25. september. Vinningshafinn var Hólmfríður Svavarsdóttir og hlaut hún tveggja vikna ferð til Mexíkó fyrir tvo að andvirði um 200.000 kr. frá Úrval-Útsýn. Leikurinn fór þannig fram að gestir Kringlunnar á dekurdögum, 14.-17. september síðastliðinn, gátu fyllt út þátttökuseðil og svarað tveimur spurningum og sett svo svarseðilinn í kassa sem stóð fyrir utan Úrval-Útsýn í Kringlunni. Um 5.000 manns skiluðu inn svarseðli.